Erlendur ferðamaður sem féll í Stuðlagil í gær er látinn. Þetta er annað banaslysið í gilinu á tveimur árum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað við ferðamannastaðinn síðustu ár.
Um 100 manns tóku þátt í björgunarstarfinu og Rauði krossinn veitti fólki á vettvangi áfallahjálp. Maðurinn sem lést var erlendur ferðamaður á fertugsaldri.
„Hann féll út í ána austan megin, Klausturselsmegin, og björgunarstarfið miðaði að því að leita að honum þar sem var langlíklegast að hann hefði endað í gilinu.“
Farið var að dimma þegar komið var auga á manninn í hyl neðan í gilinu.
Árið 2024 féll kona í gilið, einnig Klausturselsmegin. Mikil uppbygging hefur verið við gilið síðustu ár. Dagbjartur Kr. Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu, segir að mikið fjármagn hafi verið lagt í uppbygginguna svo hægt sé að tryggja öryggi ferðamanna.
„Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur greitt um 400 milljónir í uppbyggingu á undanförnum árum og því hefur mikil uppbygging átt sér stað.“
Um 170.000 manns hafa heimsótt Stuðlagil á árinu en staðurinn er vinsælasti ferðamannstaður Austurlands.
Dagbjartur segir mikilvægt að rýna í atvikið svo hægt sé að vinna að úrbótum.
„Ég mun setja mig í samband við hagaðila og skoða hvað það var sem gerðist, af hverju það gerðist og hvort hægt sé að koma í veg fyrir að svona gerist aftur.“