Tilkynning barst um málið um tuttugu mínútur fyrir níu í kvöld. Þetta segir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fréttastofu.
Hann hafði ekki upplýsingar um það hvers eðlis slysið er eða hvort um sé að ræða farþega eða áhafnarmeðlim.
Samkvæmt upplýsingum á Marinetraffic er skemmtiferðaskipið Viking Mars á vegum norska skipafélagsins Viking Cruises staðsett skammt fyrir norðan Húsavík. Skipið er á leiðinni frá Akureyri til Seyðisfjarðar, 227 metrar á lengd og tekur 930 farþega.
Björgunarsveitir hafa ekki fengið útkall vegna málsins, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.