Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Mynd: Landhelgisgæslan
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld eftir að alvarlegt slys varð um borð í skemmtiferðaskipi sem statt var um 13 sjómílur norður af Húsavík.
Markmiðið með útkallinu er að flytja hinn slasaða á sjúkrahús til frekari meðferðar.
Tilkynning um slysið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um klukkan 20:40.
Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir við fréttastofu RÚV að útkallið sé vegna alvarlegs slyss um borð í skipinu. Að svo stöddu liggja þó ekki fyrir frekari upplýsingar um tildrög slyssins eða ástand hins slasaða.