Skýrsla sem Fjarskiptastofa vann um hvernig lokun 2G og 3G farnetskerfanna gekk var kynnt í ríkisstjórn á föstudag. Í skýrslunni kemur fram að vandræði með neyðarhringingar hafi ekki komið upp fyrr en seint í ferlinu. Lokun kerfanna var á ábyrgð og að frumkvæði fjarskiptafyrirtækjanna og hafði Fjarskiptastofa engar valdheimildir til að stöðva framkvæmdina.
„Við nýttum aðrar heimildir til þess að beina þessu verkefni í betri farveg en við höfðum ekki beina heimild til þess að stöðva þetta,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu.
Fleiri eldri kerfum verður skipt út
Fleiri verkefni eru á döfinni þar sem eldri kerfum verður skipt út fyrir nýrri tækni og hefur Fjarskiptastofa lagt til að stofnunin fái auknar inngripsheimildir.
„Það kann vel að vera að einhver óvænt atvik eða aðstæður muni leiða til þess að það þurfi að grípa inn í með meira afli en við höfum haft fram til þessa. Það getur verið að það sé gott að hafa þessa lagaheimild. Við segjum ekki að við þurfum hana nauðsynlega en ég myndi vilja skoða það miðað við hvaða verkefni framundan eru,“ segir Hrafnkell.
Þar vísar hann meðal annars til lokunar TETRA-kerfisins sem fyrirhuguð er á næstu árum.
Vantar skýrara regluverk í kringum Neyðarlínuna
Þá leggur Fjarskiptastofa einnig til skýrari lagaramma um starfsemi Neyðarlínunnar.
„Það er ákveðinn lagalegur óskýrleiki hver hefur eftirlit með heildarkeðjunni í þjónustuferlinu varðandi neyðarsímtöl. Þetta er brotin keðja og það þyrfti að styrkja eftirlit með henni að mínu mati,“ segir Hrafnkell
Undir þetta tekur Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Hann segir skipta mestu máli að fólk fái örugga þjónustu. Á endanum snúist þetta um peninga en Neyðarlínan þurfi að innleiða nýtt kerfi hjá sér sem kostar nokkrar milljónir.