Eyjafréttir greina frá því að eldurinn hafi komið upp í vélarrúminu þar sem báturinn lá við bryggju. Greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn og tjón af völdum hans sé ekki mikið.
Lögreglan hefur hafið rannsókn á eldsupptökum. Enginn var í hættu og ekki urðu slys á fólki samkvæmt umfjöllun Eyjafrétta.
Maggý VE 108 er 113 brúttótonna stálskip, smíðað í Gdansk í Póllandi árið 1988 hjá Wisla Yard. Skipið er 25,94 metrar að lengd, sex metrar á breidd, og er gert út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum.