Milljarðar króna í afla- og útflutningsverðmætum tapast á hverju ári vegna þess að ekki hefur tekist að nýta leyfilegan heildarafla í ufsa. Þetta segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda (LS), í aðsendum pistli í Morgunblaðinu í dag.
11. desember sendi LS bréf til atvinnuvegaráðuneytisins þar sem athygli var vakin á málinu. Var það jafnframt ámálgað að ufsaafli sem dagróðrarbátar veiddu í net og á króka myndu ekki teljast til krókaaflamarks eða aflamargs.
„Skemmst er frá því að segja að þrátt fyrir ítrekanir um svör við erindinu hefur ráðuneytið ekki svarað því,“ segir Örn í pistli sínum.
Rúmlega 200 þúsund tonn óveidd
Samkvæmt útreikningum LS sem Örn tók saman í meðfylgjandi töflu má áætla að á síðustu fimm fiskveiðiárum hafi rúmlega 200 þúsund tonn af ufsa verið óveidd (óslægð).
„Eins og lesa má úr töflunni hefur óveitt magn farið vaxandi sem hlutfall af útgefnum heimildum og verið meira en helmingur síðustu tvö fiskveiðiárin,“ útskýrir Örn í pistli sínum. „Ef 200 krónur fengjust fyrir hvert kíló gæti aflaverðmæti þess ufsa, sem ekki var veiddur á síðustu fimm fiskveiðiárum, numið allt að 40 milljörðum króna.“
Ljóst er að Örn telur þetta óábyrga fiskveiðistjórnun sem samræmist ekki markmiðum um nýtingu heildarafla.
„Það er á ábyrgð ráðherra að sjá til þess að stjórnkerfi fiskveiða virki þannig að leyfilegur heildarafli allra tegunda nýtist með veiðum og skili verðmætum fyrir land og þjóð. Því vekur það furðu að ráðuneytið hafi ekki brugðist við bréfi LS, hvorki með skriflegu svari né ósk um viðræður,“ segir Örn og bætir við að LS telji að breytingar þurfi að gera á stjórn fiskveiða til að tryggja auknar veiðar á ufsa.
„Til þessa hafa ráðherrar talið sér það til tekna að lýsa því yfir að þeir fari í einu og öllu eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um leyfilegan heildarafla á hverju fiskveiðiári. Eins og framangreint sýnir er þar aðeins hálf sagan sögð.“

