Útlit er fyrir fínasta veður sunnan- og vestanlands í dag þar sem spáð er 12 til 20 stiga hita og oftast hægri austlægri eða breytilegri átt. Léttskýjað verður og því von á að sólin skíni á fólk. Í kvöld og nótt er þó útlit fyrir rigningu á þessum slóðum.
Annars staðar á landinu verður skýjað og smá væta öðru hverju, svalara verður norðan- og austanlands.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu í dag. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en rigning með köflum þar í kvöld og nótt. Skýjað annars staðar og smá væta öðru hverju.
Norðan og norðaustan átta til þrettán á morgun. Léttir víða til á Suður- og Vesturlandi, en þokusúld eða dálítil rigning á Norður- og Austurlandi. Hiti 12 til 20 stig, en 6 til 12 stig norðan- og austanlands.