Formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri segir stöðuna í ferðaþjónustu erfiða. Hækkandi vextir, verðbólga og launahækkanir, ásamt áhugaleysi stjórnvalda, geri greininni erfitt fyrir. Fleiri ferðamenn en áður segja ferðalag til Íslands ekki peningana virði.
„Hækkandi vextir, verðbólga, ég tala nú ekki um launahækkanir. Þetta er gríðarlega erfitt fyrir greinina. Það er engin launung á því,“ segir Kristófer Oliversson, formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri.
Hann segir átök í Miðausturlöndum hafa áhrif á ferðamannaiðnaðinn hér á landi. Maímánuður hafi verið undir væntingum og erfiðir tímar séu fram undan. „Við vonumst til þess að það rætist úr þessu í júlí og ágúst en hver veit,“ segir Kristófer.
Hann kallar eftir því að stjórnvöld endurskoði ferðamálastefnu sem samþykkt var á Alþingi árið 2024 og að innviðagjald verði lagt á skemmtiferðaskip sem hingað komi.
Stjórnvöld verði að ráðast í markaðssetningu
„Það var síðasta verk síðustu ríkisstjórnar að gera það. Núverandi ríkisstjórn lækkaði það en sneri síðan skattaásókninni yfir á baðlón, bíla og hækkaði gistináttaskatt. Þessi grein sem stýrt er af hafnarstjórum, skoðum hana vel. Og eigum við ekki að beina ásókninni í meiri skatta þangað frekar en að okkur sem erum að streða hérna allt árið?“ segir Kristófer Oliversson.
Þá sé brýnt að stjórnvöld ráðist í öfluga markaðssetningu. „Því við erum að sjá ferðamenn fara á veturna til Noregs og Finnlands. Okkar vandi er svolítið áhugaleysi stjórnvalda á þessari grein. Það er því miður þannig.“
Ánægja og tryggð dalar
Rúm 18 prósent erlendra ferðamanna sem komu til Íslands í fyrra töldu Íslandsferðina ekki peninganna virði, samkvæmt landamærakönnun Ferðamálastofu. Könnunin byggir á svörum tæplega 11 þúsund ferðamanna. Þetta er talsverð hækkun frá árinu 2022, þegar hlutfallið var 11 prósent.
Þá hefur meðmælaskor ferðamanna farið lækkandi ár frá ári en það mælir tryggð og ánægju viðskiptavina. Árið 2022 mældist það rúmlega 82, árið 2023 hafði talan lækkað niður í 77,5, árið 2024 76,3 og í fyrra var talan komin niður í 71,5.
Ferðamenn sem fréttastofa ræddi við voru flestir sammála um að Ísland væri eitt dýrasta land sem þeir hefðu komið til en að ferðalagið væri þess virði. Þeir sögðust mæla með landinu fyrir vini og vandamenn en vara við verðlaginu.
„Ég mæli með því en klárlega kem þeim í skilning um að það sé dýrt, gera áætlun og vita fyrir fram í hvað peningarnir eigi að fara,“ segir Kimberly Diggens frá Ástralíu.