Að sjá í gegnum áróðurinn

Að sjá í gegnum áróðurinn

Að sjá í gegnum áróðurinn

Að sjá í gegnum áróðurinn

Hugs­ana­vill­ur og að­ferð­ir mark­aðs­fræð­inn­ar eru nýtt­ar í kosn­inga­bar­átt­unni fyr­ir þjóð­ar­at­kvæ­að­greiðslu um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB.

Varað er við því að áróður og ósannindi dynji á þjóðinni í kringum atkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið og fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) hafa sinnt kosningaeftirliti.

En ekkert eftirlit annað en sjálfstæð hugsun og dómgreind getur hjálpað fólki að greina áhrif áróðurs frá staðreyndum og eigin hagsmunum.

Ein algengasta aðferðin í áróðri og markaðssetningu er að tengja málefni við „fallega fólkið“, eins og það er kallað í áróðursfræðunum. 

Þannig hefur Viðskiptablaðið verið með keyptar auglýsingar á Facebook með frétt sinni um hvað Annie Mist Þórisdóttir, „marg­faldur verð­launa­hafi á Cross­Fit Games og ein þekktasta af­reks­kona Ís­lands“, hefur að segja um afstöðu sína gagnvart því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Annie Mist hefur rétt á sinni skoðun, eins og hver annar, en hvers vegna Viðskiptablaðið, sem virðist berjast gegn aðildarviðræðum, ákveður að dreifa hennar skoðunum umfram annarra, er tengd hugsanavillum og aðferðum í markaðssetningu. 

Umræða um skoðanir fólks er eðlileg, en svokallaður „vitnisburðaáróður“ (e. testimonial propaganda) snýst um að fá frægt og flott fólk til að mæla með málefni eða vöru til að laða að stuðning, óháð hæfni viðkomandi á því sviði.

Geislabaugsáhrifin

Þessi aðferð, sem báðir hópar nýta, að tengja við fallega fólkið, er blanda af „yfirfærslu“ (e. transfer) og geislabaugsáhrifunum (e. halo-effect). Geislabaugsáhrifin snúa að því að einhver,  sem skarar fram úr á einu sviði, er álitinn skara fram úr á öðrum ótengdum sviðum. En það er sjaldnast raunverulega þannig.

Yfirfærslan snýr að því að tengja annan hlut eða málefni við jákvæð hughrif af afreksmanneskjunni. Líkt og þegar Messi er fenginn til að auglýsa Pepsi, eða Michael Jackson á sínum tíma, sem getur snúist upp í andhverfu sína.  

Líklega er Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis á Ísafirði sem selt var fyrir stórfé til danska fyrirtækisins Coloplast eftir árangursríka þróun á græðandi fiskiroði, skýrasta dæmið um geislabaugsáhrifin á Íslandi síðustu ár. Eftir söluna hefur Guðmundur orðið vinsæll álitsgjafi varðandi samgöngumál og margt annað utan hans sviðs, til dæmis borgarlínuna. 

Nú síðast varpaði hann efasemdum á að Kerecis hefði geta orðið til í Evrópusambandinu, en bent var á að verkefni Kerecis hefði fengið hátt í hálfan milljarð í styrk frá ESB

Á meðan birtir Evrópuhreyfingin vídeó á samfélagsmiðlum af svokölluðu „gellukvöldi“ þar sem konur skála í hvítvíni og freyðivíni eða kampavíni og hafa gaman, án nokkurar tengingar við röksemda eða áhrifa Evrópumála. 

En geislabaugsáhrifin geta líka verið öfug, þannig að reynt sé að tengja málið við einhvern sem áheyrandahópnum gæti mislíkað við.  

Þegar TikTok er opnað birtist meðal annars vídeó frá Íslandi 2040, sem birtir myndskeið gegn Evrópusambandinu. Eitt myndbandið er birt undir forskriftinni: Helstu já-sinnar Íslands. Þar eru sýndir myndir af nokkrum stuðningsmönnum þess að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrsta myndin birtist af  trans stjórnmálamanni. „Hefur enginn velt því fyrir sér af hverju allt fólkið sem er að tala fyrir ESB er fólkið sem hefur haft rangt fyrir sér um alla hluti ALLTAF síðustu ár,“ segir þar. 

Óljóst er hvað þau höfðu rangt fyrir sér með og ekki er minnst á baráttu sumra frægustu nei-sinna gegn Evrópska efnahagssvæðinu og hrakspár þeirra um það, og til dæmis andstöðu við að bjór yrði leyfður á Íslandi 1989. 

„Notalegt í París“

Talsmaður Evrópuhreyfingarinnar ýjaði að því að mögulega fengjust göng til Vestmannaeyja með styrk frá Evrópusambandinu, en að sjálfsögðu greiða Íslendingar til Evrópusambandsins og fá styrki óbeint úr eigin vasa.

Í myndbandi sem tekið var fyrir vaxtahækkun Seðlabankans en fjallaði um vaxtahækkunina tengdi talsmaður Evrópuhreyfingarinnar ESB-viðræður við Parísarferð, í gegnum hækkunina á greiðslubyrði vegna vaxtahækkunar.

„Auka 108 þúsund krónur á ári og með þeim pening gætirðu farið með kærustuna til Parísar og haft það notalegt, en í staðinn er fólk þarna úti að reyna að telja þér trú um það að við getum haft stjórn á öllu okkar efnahagskerfi ein eyja úti í Ballarhafi. Þau eru að ljúga að þér.“

Fyrir utan óljósar ásakanir um lygar, sem falla undir þá aðferð að menga brunninn (e. poisoning the well) er undirliggjandi að tengja aðildarviðræður við ESB við notalegheit í París, sem kostar reyndar nokkuð meira.

Á bakvið fánann

Ein þekktasta áróðursaðferðin og hugsanavillan eru fánaflagganir. Með þeim reyna aðilar að samsama sig við þjóðina og þjóðarstoltið, sem hefur reynst öflugt hreyfiafl í mannkynssögunni. Helst eru það nei-sinnar sem flagga íslenska fánanum á samfélagsmiðlum og í raunheimum, með undirliggjandi skilaboðum um að þau sem vilji að Ísland sé hluti Evrópusambandsins séu ekki þjóðræknir. Jafnvel er gengið lengra. „Eftir helgi verður það gert upp hverjir tóku þátt í árásinni á Ísland,“ sagði einn nei-sinni í færslu í hópi Heimssýnar, sem hlaut góð viðbrögð.

Ein vinsælasta áróðursaðferðin er „glitrandi alhæfingar“ (e. glittering generalities) sem snúast um að nota óljós og víðfeðm, en jákvæð hugtök, sér í hag. Þannig geta stuðningsmenn eins málstaðar eignað sér hugtök eins og „frelsi“ og „framtíð“.

Að stökkva á vagninn (e. jump on the bandwagon) eru síðan þau áhrif að fólk fylkist að baki málstað sem það heldur að njóti vinsælda. En það getur líka átt við um að fólk fylgi línunni til eigin framdráttar, þegar það stekkur á málefni sem nýtur stuðnings eða vinsælda til þess að öðlast framgang.  

Enn ein algeng áróðursaðferð er að ala á ótta (e. appealing to fear). Þannig auglýsa Þjóðmál í útvarpinu að ESB muni vilja leggja sæstreng til Íslands til að virkja orkuna og benda á að „Kýpur er síðasta ESB-ríkið sem er enn ótengt, en ESB vinnur að því að leggja sæstreng til Kýpur“. Vandinn er að samkvæmt áliti lagaprófessora sem unnu álitsgerð um aðild að ESB er það á forræði landsins að velja sæstreng eða ekki. ESB leggi ekki einhliða sæstreng. Og þess utan er yfir 90% af orku Kýpverja fenginn úr olíu og þeir vilja sjálfir fá sæstreng, eins og Maltverjar sem fengu til þess lán frá Evrópska fjárfestingabankanum.

Staðreyndir og marghliða sannleikur

Spurningin um aðild að Evrópusambandinu er flókin og margþætt. Lygar og falsupplýsingar eru án vafa einbeittasta áróðursaðferðin. En flest álitamálin hafa margar hliðar og áhrif sem geta talist kostir og gallar.

Hagsmunir fólks eru líka misjafnir og stundum þveröfugir. Ein manneskja, getur til dæmis haft persónulegan fjárhagslegan hag af því að húsnæðislánavextir lækki, sem önnur manneskja hefur síður. Yfir 7% innlánsvextir fyrir sparnað telja meira fyrir suma heldur en 9% vextir á húsnæðislánum. Gögn Hagstofunnar sanna þetta.

Einn helsti kostur ESB er að aðild að myntsamstarfi dregur úr óvissu, vegna sveiflna gjaldmiðils. En á móti getur sveigjanleiki gjaldmiðils hjálpað til með að endurráðstafa í hagkerfinu við breytingar, sem gerir almenning yfirleitt að stuðpúðanum. 

Vextir og verðbólga eru almennt og að meðaltali mun lægri í Evrópusambandinu heldur en á Íslandi, með undantekningu í ríki eins og Rúmeníu.

Hagvöxtur er meiri á Íslandi síðustu ár, en þegar tekið er mið af mannfjöldaþróun og horft á vöxt landsframleiðslu á hvern íbúa hefur hagvöxtur verið meiri í Evrópusambandinu en á Íslandi. Víðast hvar í Evrópu er mannfækkun yfirvofandi án innflytjenda eða stóraukinnar ævilengdar vegna lágrar fæðingartíðni. Íslendingar fjármagna eftirlaun sín að mestu með sjálfstæðum lífeyrissjóðum í uppsöfnunarkerfi á meðan fleiri Evrópulönd nýta til þess „gegnumstreymiskerfi“, sem þýðir að við höfum borgað fyrirfram en þau borga jafnóðum.

Þróun sambandsins sjálfs getur síðan talist óvissuþáttur til langs tíma. Evrópusambandið hefur breyst og mun halda því áfram, en sú þróun hefur sögulega verið römmuð inn eða stöðvuð með þjóðaratkvæðagreiðslum í einstaka ríkjum.

Ekki er öruggt að Evrópusambandið muni deila gildum með Íslendingum í framtíðinni. Hvað þá að það muni taka við mörgum hælisleitendum sem komi hingað. Flokkar langt til hægri hafa náð miklum vinsældum í lykilríkjum sambandsins. Í Þýskalandi mælist hægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (AFD) með mest fylgi síðustu misserin og í Frakklandi er Marine Le Pen, fræg forystukona hægriflokksins Þjóðfylkingarinnar, efst í skoðanakönnunum fyrir forsetakosningarnar í vor. Þar eru hins vegar tvær umferðir í forsetakosningum, sem dregur úr líkum á vali öfgafullra forystumanna.

ESB kveður borgara ekki í „Evrópuher“, en vaxandi stuðningur er við sameiginlegar varnir Evrópulanda vegna stöðunnar í NATO og hótana Bandaríkjaforseta, þótt þær geti verið útfærðar með aðskildum herjum.

Óvissan um hvað samningur fæli í sér er síðan aðeins leyst með því að klára viðræður, en það tekur orku og fókus. 

Fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan

Ríki sem eru í Evrópusambandinu hafa ekki misst fullveldið í venjulegum skilningi þess orðs. Almenningur hefur fellt ýmsar ákvarðanir með þjóðaratkvæðagreiðslum. Næstu nágrannaríki Íslands eru utan Evrópusambandsins, ef frá er talið Írland. Grænlendingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 1982 að yfirgefa ESB með 53% atkvæða. Bretar gerðu það sama 2020 eftir að 52% samþykktu úrgöngu, gegn vilja meirihluta Skota. Norðmenn höfnuðu síðast inngöngu árið 1994 með 52% atkvæða. 

Íslendingar fengu hvorki tækifæri til að greiða atkvæði með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið 2010, né um að hætta þeim, þrátt fyrir að slíkt hefði verið boðað. Árið 1994 gengu Íslendingar inn í Evrópska efnahagssvæðið án þjóðaratkvæðagreiðslu í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks og 1970 varð Ísland hluti af Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) án þjóðaratkvæðis í tíð sömu flokka.

Þrátt fyrir afdrifaríka Evrópusamvinnu og ýmsa samninga fengu Íslendingar nú í fyrsta skiptið tækifæri til að greiða beint atkvæði um Evrópusamvinnu.

#gegnum #sjá #áróðurinn


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27149/ad-sja-i-gegnum-arodurinn/

📰 Aðrar fréttir

Fyrstu tölur í kringum miðnætti en síðustu ekki fyrr en í fyrramálið
📅 29.08.2026 👁️ 0
Fyrstu tölur í kringum miðnætti en síðustu ekki fyrr en í fyrramálið
Lok talningar í Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi gætu orðið klukkan 7 í fyrramálið. Þetta kemur fram í svari frá yfirkjörstjórnum í kjördæmunu...
Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður for­setans - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður for­setans - Vísir
Maðurinn heitir Gabriel Perez og var fundinn sekur um að hafa veðjað á ræður Donalds Trump Bandaríkjaforseta frá desember 2025 til febrúar 2026. Þar s...
Cleverly quits shadow cabinet to run for London mayor
📅 29.08.2026 👁️ 0
Cleverly quits shadow cabinet to run for London mayor
The capital is not set to vote on a new mayor until 2028.
María Rut greinir frá óþægilegu símtali sem hún fékk í gær – „Þarna staðfestist orðrómurinn”
📅 29.08.2026 👁️ 0
María Rut greinir frá óþægilegu símtali sem hún fékk í gær – „Þarna staðfestist orðrómurinn”
María Rut Kristinsdóttir, þingkona Viðreisnar, greinir frá því í færslu á Facebook að hún hafi fengið símtal frá liðsmanni Áfram ísland í gær. Segist ...
Gildismatið sem ræður afstöðu Íslendinga til ESB
📅 29.08.2026 👁️ 0
Gildismatið sem ræður afstöðu Íslendinga til ESB
Gildismatið sem ræður afstöðu Íslendinga til ESB Af­staða Ís­lend­inga til Evr­ópu­sam­bands­ins ráð­ist ekki ein­ung­is af hags­muna­mati, held­ur af...
Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi - Vísir
Fyrr í vikunni var tæplega níutíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar sagt upp og frístundamiðstöðvar, sem sjá um utanhald frístundaheimila, margar hverjar...
Minnst þrjá­tíu og sjö látin eftir á­rás Rússa - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Minnst þrjá­tíu og sjö látin eftir á­rás Rússa - Vísir
Árásin beindist að vopnageymslu sem staðsett var í nágrenni við íbúasvæði. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás Rússa hafa orsakað sprengin...
Slæm umgengni í Kjarnaskógi: „Komið aldrei hérna aftur“
📅 29.08.2026 👁️ 0
Slæm umgengni í Kjarnaskógi: „Komið aldrei hérna aftur“
Í myndbandi sem birtist á Facebook-síðu Skógræktarfélags Eyfirðinga er athygli vakin á slæmri umgengni í Kjarnaskógi. Dósir sjást á víð og dreif og se...
Santa Cruz Low Emission Zone confirmed: Which cars can enter, restricted hours and €200 fines
📅 29.08.2026 👁️ 0
Santa Cruz Low Emission Zone confirmed: Which cars can enter, restricted hours and €200 fines
The rules governing the new Low Emission Zone (Zona de Bajas Emisiones or ZBE) in Santa Cruz de Tenerife have now been officially approved, setting ou...
Sigmundur Ernir skrifar: Við erum öll af sömu verðbólgukynslóðinni
📅 29.08.2026 👁️ 0
Sigmundur Ernir skrifar: Við erum öll af sömu verðbólgukynslóðinni
Mynd Í endurminningu þess sem þetta skrifar – og hann er kominn
Hvað verður um ríkisstjórnina ef nei-ið hefur betur í dag? Ólafur svarar
📅 29.08.2026 👁️ 0
Hvað verður um ríkisstjórnina ef nei-ið hefur betur í dag? Ólafur svarar
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur telur ólíklegt að ríkisstjórnin falli þótt nei verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðr...
Hákon konungur heldur minningarræðu um föður sinn í dag
📅 29.08.2026 👁️ 0
Hákon konungur heldur minningarræðu um föður sinn í dag
Hákon VIII Noregskonungur heldur í dag minningarræðu um föður sinn Harald V Noregskonung sem lést í gær.Í tilkynningu hallarinnar segir að ræða Hákons...
Bandaríkin semja um að fá olíu Venesúela
📅 29.08.2026 👁️ 0
Bandaríkin semja um að fá olíu Venesúela
Bandaríkin semja um að fá olíu Venesúela „Stærsti olíu­samn­ing­ur sög­unn­ar“ fær­ir Banda­ríkj­un­um að­gang að stærstu olíu­lind­um heims eft­ir in...
Átröskun van­greind hjá strákum og sí­fellt yngri börn þurfa að­stoð - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Átröskun van­greind hjá strákum og sí­fellt yngri börn þurfa að­stoð - Vísir
Að sögn Elínar Vigdísar Guðmundsdóttur formanns SÁTT, samtaka um átraskanir og aðrar raskanir, hefur aukin notkun samfélagsmiðla og mikil einangrun í ...
Dorrit missti að­gang á for­rit - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Dorrit missti að­gang á for­rit - Vísir
Dorrit greinir frá þessu í færslu á Instagram-reikningi sínum. Hún virðist þó að einhverju leyti vera björgum boðin en tilkynningunni fylgir ábending ...
Sálfræðingur rannsakar fólk sem nær langt: Þetta á það allt sameiginlegt
📅 29.08.2026 👁️ 0
Sálfræðingur rannsakar fólk sem nær langt: Þetta á það allt sameiginlegt
Fólk sem nær miklum árangri á eitt mikilvægt sameiginlegt: Það er óhrætt við að biðja aðra um hjálp.Þetta segir Angela Duckworth, prófessor í sálfræði...
Ásta Lóa varar við því sem gæti gerst eftir kosningarnar
📅 29.08.2026 👁️ 0
Ásta Lóa varar við því sem gæti gerst eftir kosningarnar
Ásta Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins og fyrrverandi ráðherra, segist óttast að sú fylking sem bíður lægri hlut í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ...
20 ára afmæli Kjötsúpuhátíðarinnar fagnað á Hvolsvelli
📅 29.08.2026 👁️ 0
20 ára afmæli Kjötsúpuhátíðarinnar fagnað á Hvolsvelli
Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fagnar 20 ára afmæli, dagskrá helgarinnar er fjölbreytt og ókeypis á alla viðburði. Hátíðin hófst á miðvikudaginn og lýku...
Ólíklegt að ríkisstjórnin falli verði niðurstaðan nei
📅 29.08.2026 👁️ 0
Ólíklegt að ríkisstjórnin falli verði niðurstaðan nei
Stjórnmálafræðingur segir flokkahollustu það sem skýri mest hvað fólk komi til með að kjósa. Hann segir ólíklegt að ríkisstjórnin falli verði niðursta...
Football fans tribute to crash death Cleveland Police officers
📅 29.08.2026 👁️ 0
Football fans tribute to crash death Cleveland Police officers
PC Matthew Blades and PC Tom Clough died in a head-on collision on the A66 near Middlesbrough.
Vís­bendingar um aukna kjör­sókn - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Vís­bendingar um aukna kjör­sókn - Vísir
29. ágúst er runninn upp, dagurinn sem Íslendingar segja nei eða já við því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörstaðir voru opnaðir...
Er ættarmótamenningin að deyja út á Íslandi?
📅 29.08.2026 👁️ 0
Er ættarmótamenningin að deyja út á Íslandi?
Er íslenska ættarmótamenningin að deyja út? Og ef svo hvers vegna? Á samfélagsmiðlinum Reddit er umræða um hvers vegna ættarmót séu ekki jafn áberandi...
Þegar smáríki díla við stærri ríki
📅 29.08.2026 👁️ 0
Þegar smáríki díla við stærri ríki
Þegar smáríki díla við stærri ríki „Banda­rík­in eru mögu­lega ógn gagn­vart Ís­landi, en helst við banda­ríki Ís­lands, Græn­land, Dan­mörk og Kan­ad...
Tugir látnir eftir árásir á útjaðar Kænugarðs
📅 29.08.2026 👁️ 1
Tugir látnir eftir árásir á útjaðar Kænugarðs
Í það minnsta 37 hafa látið lífið eftir drónaárás Rússlandshers á birgðastöð í útjaðri Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í nótt. Eldur kviknaði eftir ár...
Kjör­sókn meiri en á sama tíma í síðustu þing­kosningum - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Kjör­sókn meiri en á sama tíma í síðustu þing­kosningum - Vísir
Við förum yfir kjörsókn í Reykjavík auk þess sem við heyrum í formanni yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi í beinni útsendingu. Þá förum við yfir þa...
Er­lendir fjöl­miðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Ís­lendinga í kjör­klefana - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Er­lendir fjöl­miðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Ís­lendinga í kjör­klefana - Vísir
Ef helstu fréttamiðlar nærri Íslandi eru skrunaðir má sjá Íslandi bregða fyrir og myndir af íslenskum fánum.  Breska ríkisútvarpið tók saman helstu pu...
Allar þjóðaratkvæðagreiðslur Íslendinga
📅 29.08.2026 👁️ 0
Allar þjóðaratkvæðagreiðslur Íslendinga
Í dag fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er níunda þjóðaratkvæðagreiðslan sem fer fram á Íslandi, í ...
Tarantino valdi bestu mynd aldarinnar – Ridley Scott hjartanlega ósammála
📅 29.08.2026 👁️ 0
Tarantino valdi bestu mynd aldarinnar – Ridley Scott hjartanlega ósammála
Breski kvikmyndaleikstjórinn Ridley Scott hefur svarað heldur óvæntu hrósi frá kollega sínum, leikstjóranum Quentin Tarantino, sem útnefndi stríðsmynd...
Gauti lýsir sárum vonbrigðum með Katrínu – Þjóðþekktir taka undir: „Þetta var sárt“
📅 29.08.2026 👁️ 0
Gauti lýsir sárum vonbrigðum með Katrínu – Þjóðþekktir taka undir: „Þetta var sárt“
Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor við Brown University, gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, harðlega fyrir málflutning ...
Vikulokin - Kjördagur, uppsagnir og kjaramál
📅 29.08.2026 👁️ 0
Vikulokin - Kjördagur, uppsagnir og kjaramál
Í Vikulokunum í dag verður rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðb...
Sarah Ferguson expected back in the UK shortly, source tells BBC
📅 29.08.2026 👁️ 0
Sarah Ferguson expected back in the UK shortly, source tells BBC
The former Duchess of York is renting a six-bed house in the Home Counties, reports say.
Burnham's summer tour is over - now he has to prove himself in Parliament
📅 29.08.2026 👁️ 0
Burnham's summer tour is over - now he has to prove himself in Parliament
The imminent return of Parliament will put the new prime minister under real scrutiny, with MPs finally getting a chance to grill him.
„Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
„Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ - Vísir
„Ég met stöðuna þannig að þetta sé hnífjafnt og hafi eiginlega ekkert breyst síðustu tvo mánuði,“ sagði Ólafur þegar hann var beðinn um að rýna í nýju...
Auður er með stóma en hefur ekki gefið tilhugalífið upp á bátinn – „Þetta er dálítið millibilsástand“
📅 29.08.2026 👁️ 0
Auður er með stóma en hefur ekki gefið tilhugalífið upp á bátinn – „Þetta er dálítið millibilsástand“
Auður Helgadóttir Möller er 48 ára, einhleyp tveggja barna móðir sem hefur þurft að glíma við nokkur stór og samtengd áföll á stuttum tíma. Í fyrra gr...
Þurfti að halda á­fram að vinna þrátt fyrir hættu­legt á­stand á með­göngu - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Þurfti að halda á­fram að vinna þrátt fyrir hættu­legt á­stand á með­göngu - Vísir
Dagbjört varð ófrísk að syni sínum árið 2020 en þrátt fyrir meðgöngueitrun, háan blóðþrýsting, mikinn höfuðverk og sjóntruflanir sá hún sig tilneydda ...
Ellefu athugasemdir sendar kosningaeftirliti ÖSE: Benda á gat í íslenska kosningakerfinu
📅 29.08.2026 👁️ 0
Ellefu athugasemdir sendar kosningaeftirliti ÖSE: Benda á gat í íslenska kosningakerfinu
Samtök skattgreiðenda hafa sent sérfræðingateymi ÖSE/ODIHR á Íslandi formlegt erindi með ellefu athugunarpunktum vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áf...
Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára af­mælið - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára af­mælið - Vísir
Dolly lést á þriðjudag eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Hún var orðin áttatíu ára gömul.  „Hún elskaði að sjá drauma sína verða að veruleika o...
At least 37 dead and hundreds evacuated after strike on Kyiv weapons depot
📅 29.08.2026 👁️ 0
At least 37 dead and hundreds evacuated after strike on Kyiv weapons depot
An investigation has begun into the storage of weapons for Ukraine's military near a residential area.
Allt bendi til lítils jökulshlaups - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Allt bendi til lítils jökulshlaups - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Þar segir að leiðnimælingar gefi vísbendingar um magn jarðhitavatns í ám og bendir hækkuð leiðn...
Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjör­borðinu - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjör­borðinu - Vísir
Hæg breytileg átt eða hafgola á landinu í dag. Stöku skúrir, einkum norðvestantil og á Suðurlandi en bjart með köflum og þurrt vestanlands. Hiti á bil...
Annað hlaupið í Múlakvísl í þessum mánuði
📅 29.08.2026 👁️ 0
Annað hlaupið í Múlakvísl í þessum mánuði
Aukin rafleiðni í Múlakvísl bendir til þess að lítið jökulhlaup sé hafið. „Hún hefur verið að aukast hægt og bítandi síðastliðna þrjá sólarhringa og m...
Hnífjafnt milli fylkinga í síðustu könnun Maskínu
📅 29.08.2026 👁️ 0
Hnífjafnt milli fylkinga í síðustu könnun Maskínu
Það munar innan við prósentustigi á já- og nei-fylkingunum í síðustu könnun Maskínu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninn...
Hafði af­skipti af ellefu ára stúlku í mið­bænum eftir mið­nætti - Vísir
📅 29.08.2026 👁️ 0
Hafði af­skipti af ellefu ára stúlku í mið­bænum eftir mið­nætti - Vísir
Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem segir jafnframt að lögregla hafi haft afskipti af tveimur stúlkum, fimmtán...
Átakalínur: Hvað verður um netsölu áfengis?
📅 29.08.2026 👁️ 0
Átakalínur: Hvað verður um netsölu áfengis?
Áfengi hefur nú um árabil verið selt af einkaaðilum á netinu við lítinn fögnuð þeirra sem berjast fyrir lýðheilsu, nú hefur lögreglan stigið inn í mál...
Sólveig Anna svarar hörðum árásum: „Þá rís þetta fólk upp til að kalla mig svikara og portkonu“
📅 29.08.2026 👁️ 0
Sólveig Anna svarar hörðum árásum: „Þá rís þetta fólk upp til að kalla mig svikara og portkonu“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lætur gagnrýnendur sína heyra það í harðorðri færslu á Facebook og segir mikla þversögn og „skíta-kvenfyri...
Egill spáir pólitísku uppgjöri: „Kröfur um afsögn munu heyrast strax annað kvöld“
📅 29.08.2026 👁️ 0
Egill spáir pólitísku uppgjöri: „Kröfur um afsögn munu heyrast strax annað kvöld“
Egill Helgason fjölmiðlamaður telur nær öruggt að nei-sinnar fari með sigur af hólmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið...
Eflum fullveldið með ESB
📅 29.08.2026 👁️ 1
Eflum fullveldið með ESB
Eflum fullveldið með ESB Ís­land hef­ur áð­ur brugð­ist við svipt­ing­um og tek­ið stór­ar ákvarð­an­ir á óvissu­tím­um. Páll Rafn­ar Þor­steins­son, ...
Mun ríkisstjórnin taka Brussel fram yfir þjóðina?
📅 29.08.2026 👁️ 0
Mun ríkisstjórnin taka Brussel fram yfir þjóðina?
Mun ríkisstjórnin taka Brussel fram yfir þjóðina? Þessi rík­is­stjórn var kjör­in til að ná tök­um á efna­hags­vanda heim­il­anna og henni hef­ur mist...
Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu
📅 29.08.2026 👁️ 0
Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu
Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu Rann­sókn­ar­fjöl­mið­ill­inn Follow the Mo­ney full­yrð­ir að ís­lensk­ir sty...
Þjóðin greiðir atkvæði um aðildarviðræður við ESB
📅 29.08.2026 👁️ 0
Þjóðin greiðir atkvæði um aðildarviðræður við ESB
Í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sögðust aðeins fleiri ætla að segja nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við ESB. 51,6% ...