Í dag er von á björtu veðri að mestu þó að skýjað verði með köflum við ströndina. Hæg breytileg átt og líkur á stöku skúrum síðdegis, einkum inn til landsins. Þá má gera ráð fyrir hita á bilinu 5 til 18 stig.
Veður á morgun verður svipað.
„Skýjað með köflum á morgun, en yfirleitt bjart sunnantil og einnig sums staðar á Norðurlandi. Hiti 8 til 18 stig að deginum, svalast við norður- og austurströndina,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.