Þetta segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Tilkynning hafi borist um slysið rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld.
Stefán hafði ekki upplýsingar um það hvað nákvæmlega átti sér stað en segir að ekki hafi verið um að ræða árekstur við bifreið eða annað mótorhjól.