Að minnsta kosti 42 voru drepnir í átökum þjóðarbrota í Austur-Tjad í gær. Fréttaveitan AFP hefur eftir ónafngreindum embættismanni í ríkisstjórn landsins að átök hefðu brotist út milli hópa fólks í héraðinu Wadi Fira vegna vatnsbrunns.
Átök hafa ítrekað brotist út milli bænda og hirðingja í Austur-Tjad. Spennan hefur aukist frá því að mikill fjöldi flóttamanna flúði stríðsátök í Súdan yfir til Tjad.
Yfir þúsund voru drepin og um tvö þúsund særð í átökum um ræktað land og beitilönd á árunum 2021-2024 að sögn frjálsu félagasamtökanna International Crisis Group.