Hátt í 27 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst á Sundhnúkagígaröðinni þann 16. júlí í fyrra.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að landris og kvikusöfnun haldi áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram stöðug. Þar segir að meðalhraði kvikusöfnunar síðustu fjórar vikur hafi haldist stöðugur.
Jarðskjálftavirkni lítil
Jarðskjálftavirkni á Sundhnúkagígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil og er hættumat Veðurstofunnar óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni.
Goshléið á Sundhnúkagígaröðinni er orðið það langlengsta frá því hrina eldgosa hófst þar í desember 2023 en síðasta eldgosi, því níunda í röðinni, lauk 5. ágúst í fyrra.