Egilsstaðir eru óðum að fyllast af höfuðborgarbúum sem flykkjast þangað í sólina. 26 gráðum er spáð í bænum á morgun.
Gunnlaugur Jónasson rekur Gistihúsið á Egilsstöðum og veitingastaðinn Frú Nielsen sem hann opnaði nýverið í elsta húsi bæjarins en hann gerir ráð fyrir að það verði nóg að gera um helgina.
Spurður hvort margar bókanir hafi bæst við á Gistihúsinu eftir að góðviðrisspáin fyrir helgina varð ljós segir Gunnlaugur: „Það var nú næstum því uppbókað hjá okkur en það hefur kannski fyllst í eitt og eitt herbergi sem er laust.“
Hann bætir þó við að fleiri komi við á veitingastað hótelsins.
Gestir þyrstir í hitanum
Sem fyrr segir opnaði Gunnlaugur á dögunum veitingastaðinn Frú Nielsen ásamt konu sinni, Huldu Elisabeth Daníelsdóttur, en þar er boðið upp á ýmsa létta rétti og drykki. Hann gerir ráð fyrir að það verði sömuleiðis mikið að gera þar um helgina.
„Ef það verður mikil sól á pallinum hjá okkur þá búumst við við að mikið af fólki muni sitja þar,“ segir Gunnlaugur og bætir við að þau hafi undirbúið helgina með því að tryggja að nóg sé til af öllu og að staðurinn sé vel mannaður.
Hvað er það sem þið þurfið helst að byrgja ykkur upp af í svona góðu veðri?
„Það eru fljótandi drykkir og eitthvað svona hollt og gott.“
Viðtökurnar vonum framar
Spurður hvernig viðtökurnar á nýja staðnum, sem er staðsettur í einu sögufrægasta húsi Egilsstaða, Nielssenhúsi, hafi verið segir Gunnlaugur þær hafa verið vonum framar.
„Það hefur gengið alveg vonum framar og verið meira að gera en við bjuggumst við. Við höfum þurft að bæta við fólki á vaktir og svona. Fólk er greinilega tilbúið í eitthvað annað en hamborgara og pizzur,“ segir hann og bætir við að fólki þyki gaman að sjá svo mikið líf í húsinu.
„Það hefur verið mikið af bæjarbúum að koma sem finnst gaman að geta droppað þarna við í eitthvað svona létt og gott.“
Búðin troðfull
15,9 gráður mældust á Egilsstöðum í dag en samkvæmt veðurspá mun hlýna töluvert á morgun og hitinn ná allt að 26 gráðum.
Gunnlaugur segir fólk þegar farið að streyma inn í bæinn.
„Við erum einmitt að koma úr Bónus og búðin er troðfull. Allir Reykvíkingarnir eru komnir.“