12 fórust og 54 eru slasaðir, þar af sex alvarlega, eftir mikla skógarelda í norðausturhluta Alsír í gær.
France 24 greinir frá því að rúmlega 150 skógareldar hafi logað í landinu, þar af 36 í Bejaia-héraði. Fjöldi fólks þurfti að yfirgefa heimili sín vegna eldanna.
Að minnsta kosti sex fórust í skógareldum í síðasta mánuði, en eldar hafa verið tíðir þar í landi í sumar. Skógareldar kvikna á hverju sumri í norðurhluta landsins vegna þurrka og loftslagsbreytinga.
Tugir hafa farist á síðustu árum, þúsundir hektara skóga hafa brunnið í eldunum og margir hafa misst heimili sín.