Rússneskt skip, Professor Molchanov, sem grunur leikur á að hafi verið notað við áróðursstarfsemi og skipulagningu fjölþáttaógna var í gær kyrrsett við rússneska kolanámubæinn Barentsburg á Svalbarða.
Skipið hefur undanfarin ár verið notað við leit að steinefnum undir hafsbotninum við Svalbarða. Það var gert að kröfu úkraínska ríkisorkufyrirtækisins Naftogaz. Rússneska utanríkisráðuneytið segir Norðmenn stunda sjóræningjastarfsemi.
Lars Fause, norski sýslumaðurinn á Svalbarða, segir kyrrsetninguna gerða í kjölfar úrskurðar héraðsdóms Norður-Troms og Senja, og ætlað að tryggja að Rússar standi við útistandandi skuldbindingar sínar gagnvart félaginu.
Þeim beri að greiða bætur fyrir yfirtöku eigna þess við innlimun Krímskaga árið 2014. Alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Rússum að greiða Naftogaz 4,22 milljarða bandaríkjadala í bætur, vexti og lögfræðikostnað.
Grunur um að skipið hafi verið notað við áróður og sköpun fjölþáttaógnar
Norska ríkisútvarpið hefur eftir Kari Aga Myklebost, prófessor í rússneskri sögu við Norðurslóðaháskólann, að grunur leiki á að rússnesk stjórnvöld hafi notað skipið við að skapa fjölþáttaógn og áróðursstarfsemi á norðurslóðum.
Hún kveðst búast við hörðum viðbrögðum frá Rússum og að Norðmenn verði að standa fastir fyrir og senda þau skilaboð að Kremlverjum líðist ekki slíkt athæfi. Þannig tryggi norsk stjórnvöld öryggi og sýni Úkraínumönnum stuðning ásamt því sem fælingarmáttur felst í þessari tegund lagalegra aðgerða.
Rússar hafi fyrir þremur árum heimilað beitingu borgaralegra skipa í hernaðarlegum tilgangi og Myklebost kveðst afar efins um að Professor Molchanov hafi aðeins verið notað sem farþegaskip milli Murmansk og Barentsburgar.
Fause sýslumaður vill ekki tjá sig um pólitískar hliðar málsins, það þurfi ríkisstjórnin að gera. Hann segir að skipið liggi við höfn í Barentsburg þar til dómstóllinn eða sýslumaður ákveði annað. Áhöfn og farþegum verði veitt öll sú aðstoð sem þurfi, þar á meðal við að komast aftur til Rússlands.
Fréttin var uppfærð með yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisins um að Norðmenn hafi hegðað sér sem sjóræningjar með kyrrsetningu skipsins.