Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er komið á sölu og er það Hamarsbraut 4. Húsið stendur á rólegum útsýnisstað skammt frá miðbænum og er óskað eftir tilboði í eignina.
Húsið var reist árið 1990 og er 204,6 fermetrar að stærð, þar af er 26,1 fermetra bílskúr. Sigurður Einarsson hjá Batteríinu hannaði húsið, Guðrún Margrét Ólafsdóttir hjá go form sá um innanhússhönnun og Þráinn Hauksson hjá Landslagi hannaði lóð og garð.
Á neðri hæð eru meðal annars eldhús, stofa og borðstofa með arni og stórum gólfsíðum gluggum. Þar er einnig þvottahús, sturtuherbergi og bílskúr sem nú er nýttur sem herbergi.
Á efri hæð eru þrjú herbergi, baðherbergi og bjart sjónvarpshol með ofanbirtu. Úr hjónaherberginu er gengið út á svalir.
Lóðin er fullfrágengin og bílastæði fyrir tvo til þrjá bíla er upphitað.