Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist hafa svarað spurningum Ingvars Þórs Björnssonar þáttastjórnanda á klaufalegan hátt.
Í þættinum sagði Grímur að lítið hefði gerst í þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr fór fyrir. Meðal ástæðna þess að Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar var óánægja með forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í málefnum barna.
Starfstíma nefndarinnar lauk fyrir fimm mánuðum
Jón Gnarr furðaði sig á ummælum Gríms í þættinum. „Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ sagði hann í samtali við fréttastofu fyrr í kvöld.
„Þessi nefnd var skipuð til eins árs formlega í júní 2025 þannig að starfstíma nefndarinnar lauk fyrir fimm mánuðum, sem ætti nú alveg að skýra af hverju nefndin hefur ekki verið að koma saman,“ bætti hann við og sagðist líta á ummælin sem persónulega árás á sig.
Skýringar Jóns réttar
Í færslu sinni staðfestir Grímur orð Jóns og ítrekar að orðalagið í svörum hans hafi verið óheppilegt.
„Ég svaraði þeim spurningum klaufalega, m.a. þannig að ég hefði ekki verið boðaður á fundi í nefndinni undanfarið sem er auðvitað rétt en á sér þær skýringar sem Jón Gnarr vísar til í meðfylgjandi frétt, þ.e. að nefndinni hafi verið ætlað að starfa í eitt ár og hún því ekki lengur starfandi,“ segir Grímur.
„Mér þykir leitt að hafa svarað spurningum um þessa nefnd klaufalega og bið Jón afsökunar á því.“