Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.
Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Suðaustur-Asíu, valdið slæmum viðbrögðum í öndunarfærum bæði manna og dýra og takmarkað útiveru íbúa verulega í Indónesíu, Malasíu, Singapúr og Austur-Tímor.
Í Indónesíu keppast dýraverndunarsamtök við að bjarga villtum dýrum frá eldunum, þar á meðal órangútanöpum sem eru tegund í útrýmingarhættu. Talið er að rétt tæpum hundrað öpum hafi verið bjargað frá eldunum á undanförnum vikum.