Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig eru viðvaranir vegna skriðuhættu á norðvesturhluta landsins og vegna mikillar ölduhæðar nærri ströndinni sunnan og vestantil.
Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands er von á rigningu og skúrum og hita á bilinu 6-12 stig. Úrkomulítið verður á norðaustanverðu landinu.
Þessa stundina eru gular viðvaranir vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra. Þegar líður á daginn nær viðvörunin til fleiri landshluta og frá 18-21 eru gular viðvaranir vegna suðvestan hvassviðris á öllu landinu.
Hægt er að fylgjast með viðvörunum á vef Veðurstofu Íslands.
Í fyrramálið er spáð suðvestanátt upp á 10-18 metra á sekúndu og að síðan lægi með deginum. Áfram verði væta í flestum landshlutum en síst norðaustanlands. Hiti á bilinu 4-10 stig.