Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemenda og var afmælisgestum boðið að ganga á milli stofa og skoða ljósmyndir og myndskeið frá ýmsum tímabilum.
Ísak Jónsson stofnaði skólann árið 1926, sem hefur frá fyrstu tíð sérhæft sig í menntun nemenda á aldrinum fimm til níu ára. Skólinn er einkarekinn og því ekki bundinn við eitt skólahverfi og koma nemendur víðs vegar af höfuðborgarsvæðinu.
Bræðurnir Sigurður Krummi og Gunnar Krummi Eggertssynir mættu galvaskir í afmælisfögnuðinn með afa sínum. Þeir sögðust ýmislegt hafa lært í skólanum, til dæmis að lesa og að vera góðir og kurteisir.