Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var sent á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Greindi lögregla frá þessu fyrr í dag og hefur nú birt nánari upplýsingar um slysið, en um var að ræða alvarlegt slys sem átti sér stað þegar 10 manna hópur ferðafólks á jeppum var að fara að losa fastan jeppa, en karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi