Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard Baudoux er bæjarstjóri Aulnoye-Aymeries í Norður-Frakklandi. Hann segir árásina skýrt dæmi um ofbeldi landtökufólks.
„Ég held að það að landtökufólkið fái að haga sér svona sé merki um umburðarlyndi af hálfu ísraelskra yfirvalda,“ segir Baudoux. Hann var í heimsókn í Taybeh þegar ráðist var á hann.
„Heimurinn verður að vita hvað er í gangi hérna. Þegar ég fer heim kemst ég aftur í öryggi. En fólkið sem þjáist mest er fólkið sem hér er.“
Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, hefur fordæmt árásina en belgískur aðalræðismaður var með í för.
„Það gengur ekki lengur að ofbeldisfullu landtökufólki sé ekki refsað,“ skrifar Prévot á X.
„Þetta ofbeldi verður ekki aðskilið frá ólöglegri landtökustefnu Ísraela. Belgar fordæma áframhaldandi landtöku og tilraunir til að neyða Palestínubúa til að yfirgefa heimili sín.“
Baudoux er vinstri sinnaður stjórnmálamaður. Hann ferðaðist til Taybeh til að heimsækja aðalræðismann Frakklands í Jerúsalem og prest frá heimaslóðum sínum til að undirrita samkomulag á milli Aulnoye-Aymeries og Taybeh.
Réðust á hann með höggum og spörkum
Að sögn bæjarstjórans kom landtökufólk skyndilega á tveimur til þremur bílum og hrópaði á hann. Það hafi sparkað í hann og lamið með járnbareflum svo bæjarstjórinn féll til jarðar. Presturinn hjálpaði Baudoux á fætur og í skjól inni í bíl.
Frakkinn særðist ekki alvarlega í árásinni.
„Það er tilefnislaust ofbeldið sem slær mig mest,“ segir bæjarstjórinn. „Þeir voru alveg brjálaðir þegar þeir mættu.“
Það sé ótrúlegt að landtökufólk fái að haga sér með þessum hætti. Baudoux er þó alveg sannfærður um að engum verði refsað fyrir árásina.