Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisútvarpið, SVT, hefur eftir lögreglu að drengirnir séu ekki búsettir í Stokkhólmi og virðist ekki hafa nein tengsl við fórnarlambið.
Konan, sem er á þrítugsaldri, var skotin í Kämptetorp-höllinni í Älsvjö í Stokkhólmi um níu í gærkvöldi. Þá var húsið troðfullt af ungmennum þar sem verið var að keppa í bæði fótbolta og handbolta. Konan var flutt á sjúkrahús og er enn í lífshættu.
Tilefni árásar óljóst
Talsverður viðbúnaður var við Kämptetorp-höllina eftir árásina í gær. Lögregla girti stórt svæði af og tók skýrslur af fjölda fólks.
„Það er ekkert sem bendir til þess að viðkomandi hafi verið skotmark í árásinni. Við erum að kortleggja atburðarásina og reyna að skilja hvers vegna kom til þessa ofbeldis,“ segir Kristoffer Olofsson lögreglustjóri.
SVT hefur eftir ótilgreindri heimild að skotárásin kunni að hafa verið í hefndarskyni. Ættingjar konunnar séu á svokölluðum dauðalista. Náinn ættingi hennar hafi verið dæmdur í fangelsi fyrir nokkur brot árið 2023. Sá var meðal annars ákærður fyrir morð og tilraun til manndráps en var sýknaður af þeim ákæruliðum.
Olofsson segir rannsókn málsins ekki komna nægilega langt til að spá fyrir um hvort hætta sé á hefndum vegna árásarinnar.