„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir

„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir

„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir

„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamiklir aðilar, og þeir allra valdamestu, sölsi undir sig völd og láti sem sá sem hefur mestan mátt hafi rétt fyrir sér. Á sama tíma er mjög mikilvægt að láta ekki hugfallast, því það er einmitt það sem þetta fólk vill að við gerum,“ segir Türk spurður um stöðu heimsins í dag, fjölda átaka og mögulegt vonleysi sem fólk geti fundið til.

Hann segir að þetta sé ein af ástæðunum fyrir því að hann vildi koma til Reykjavíkur.

„Við getum lært af fortíðinni og sögunni að við getum haft áhrif. Við getum breytt því sem virðist vera óleysanlegt og flókið vandamál. Maður heldur kannski að engin lausn sé til, en í raun getum við fundið hana.“

Hann bendir á að til dæmis í kalda stríðinu hafi tekist að útrýma bólusótt og að 1975 hafi 35 þjóðir náð að koma sér saman um Helsinkisáttmálann. Samkomulagið var afrakstur Ráðstefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu (CSCE) og var hannað til að draga úr spennu milli austurs og vesturs í kalda stríðinu.

Fundurinn sem markaði upphafið að endinum

„Og svo höfðum við Reykjavík. Ég tel að það skipti máli að tveir leiðtogar hafi hist hér fyrir fjörutíu árum, það var mikil óánægja með að það væri ekkert samkomulag, en fundurinn markaði upphafið að endinum,“ segir hann og á við endalok kalda stríðsins.

Hann segir því afar mikilvægt að fólk gleymi því aldrei að breytingar séu á þeirra valdi.

„Ég held að stundum sé verið að reyna að dreifa athygli fólks svo því líði eins og það sé vanmáttugt. En það er einmitt hið gagnstæða sem við þurfum að leggja áherslu á. Saga mannkyns er að mörgu leyti saga baráttunnar fyrir mannréttindum, auknu frelsi, frelsun, og virkjun fólks. Þvert á móti tel ég að við eigum að finna leiðir til að gera mannréttindi að uppsprettu vonar.“

Türk var á landinu vegna friðarráðstefnu í tilefni af því að 40 ár eru frá fundi Mikail Gorbatsjov og Ronald Reagan í Höfða. Hann hélt erindi á ráðstefnunni en fundaði einnig með dómsmála- og utanríkisráðherra auk þess sem hann fundaði með íslenskum félagasamtökum.

Türk hefur gegnt embætti mannréttindafulltrúa frá árinu 2022 og var fyrr á árinu skipaður aftur sem mannréttindafulltrúi. Í hlutverki sínu gegnir hann hlutverki æðsta embættismanns Sameinuðu þjóðanna gagnvart mannréttindum og svarar aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Í ræðu þinni á Íslandi nefndirðu að það væri þörf á öðru „Reykjavíkur-mómenti“ þannig þú aðhlýtur samt að bera kennsl á það að fólk þurfi hvatningu?

„Já, en ég vil líka benda á valdabaráttuna. Það er unnið að því að fólki líði eins og það sé hjálparvana. Þau vilja að fólk finni til ótta, ekki endilega reiði, heldur ótta, en óttinn lamar okkur og gerir okkur stjörf. Við þurfum því að sigrast á óttanum og segja: Nei, við getum haft áhrif. Við höfum frelsi. Við getum gert eitthvað í þessu.

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna,var á landinu í tilefni af friðarráðstefnu. Vísir/Anton Brink

Hrifin af Höllu og samtali hennar

Hann segir þetta einmitt tilgang the Global Alliance for Human Rights sem hann setti á stofn og kynnti í sumar. Í tilkynningu um það í sumar kom fram að bandalagið væri stofnað til að efla hlutverk mannréttinda í ákvarðanatöku, forystu og daglegum athöfnum og leiðir saman stjórnvöld, sveitarfélög, borgaralegt samfélag, einkageirann og fræðasamfélagið til að sjá fyrir sér, eiga í samræðu og grípa til aðgerða í aðdraganda 80 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna árið 2028.

„Ég vil skapa vettvang fyrir fólk sem vill virkja aðra, breyta hlutunum og sættir sig ekki við óbreytt ástand. Fólk sem vill heldur ekki láta sundra sér og stjórna sér með þessum hætti, heldur vill vinna gegn skautun og sundrungu og segja: Við ætlum að ná til þeirra þó að þau séu kannski ekki sammála okkur,” segir Türk og nefnir að honum hafi, í því samhengi, þótt mikið til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, koma og samtalsins sem hún efndi til um síðustu helgi.

„Ég held að þetta gæti verið gott módel fyrir önnur lönd.“

Türk segir að þó svo að Ísland sé lítið land geti Íslendingar haft mikil áhrif.

„Þið eruð mjög öflugir málsvarar mannréttinda og alþjóðlega réttarkerfisins. Það er afar jákvætt að þið hafið haldið þennan viðburð hér og leitt saman leiðtoga til að endurvekja anda Reykjavíkur. Þið gegnið mikilvægu hlutverki sem þjóð sem lætur sig heiminn varða og vill að það endurspeglist í alþjóðakerfinu. Smærri ríki eru auðvitað háðari alþjóðakerfinu en þau stærri, að minnsta kosti að því er virðist. En stóru ríkin eru líka háð þeim minni, þau gera sér bara ekki grein fyrir því. Smærri ríki vita alltaf að þau þurfa á þeim stærri að halda. Ég kem sjálfur frá litlu landi. Við ólumst upp við alþjóðalög og litum á þau sem okkar besta öryggisnet.“

En þegar þú talar um „valdamikla leikendur“ sem eru að sýna sig ertu þá að tala um Trump, Netanyahu og Pútin?

„Já, en einræðisherrum hefur fjölgað og stjórnmálamönnum sem hugsa aðeins til skamms tíma og gleyma langtímamarkmiðunum. Það er hættulegt. Fyrir okkur, og fyrir mig, snúast mannréttindi alltaf um að ná völdunum aftur í eigin hendur og gera sér grein fyrir því að við getum haft áhrif. Einræðisherrar heimsins vilja að fólk trúi því að það sé vanmáttugt. Þeir vilja að fólk sé pirrað og ringlað.“

Hann segir að í þessu megi ekki gleyma þögla meirihlutanum og að hann vilji ekki grimmd.

„Fólk vill ekki vera grimmt. Það vill gera það sem er rétt og standa vörð um réttindi annarra. Við þurfum að virkja þetta á ný.“

Verði að koma á raunverulegu vopnahléi

Spjallið víkur þá að átökum heimsins og stöðunni á Gasa og Vesturbakkanum og hvað geti verið fram undan. Türk segir áríðandi að á Gasa verði komið á raunverulegu vopnahléi og að komið verði í veg fyrir frekari brot á Vesturbakkanum.

„Það sem landnemarnir gera, með stuðningi og aðstoð ísraelsku öryggissveitanna, verður að stöðva. Ég þekki Ísraela sem eru alfarið á móti þessu og sæta oft mikilli gagnrýni innan ísraelsks samfélags. En það er til fólk sem gerir sér grein fyrir því að þetta er ekki rétta leiðin. Það þjónar ekki öryggishagsmunum Ísraels að halda áfram að fara illa með heila þjóð. Ísraelar eiga skýra og lögmæta öryggishagsmuni en Palestínumenn eiga líka sjálfsákvörðunarrétt. Þú getur ekki haldið áfram ólögmætu landnámi endalaust, sem hefur auðvitað staðið yfir í áratugi.“

Hann segir áríðandi að það sé fundin leið til að ná sáttum.

„Það þarf að leiða samfélögin saman á ný, ekki síst eftir hryllinginn 7. október, eftir það sem Hamas og vopnaður armur samtakanna gerðu, en einnig eftir hræðilegan hernað Ísraela. Innan beggja samfélaga þarf að horfast í augu við það sem hefur gerst, segja sannleikann og hefja sátta- og bataferli. Ég tel að tveggja ríkja lausn sé möguleg ef pólitískur vilji er til staðar.“

Hann segist þó ekki sjá þetta verða að raunveruleika eins og staðan er í dag. 

„Óbreytt ástand getur ekki verið framtíðin.“

Miðað við ljósmyndir af eyðileggingunni á Gasa er erfitt að sjá fyrir sér uppbyggingu á svæðinu.

„Já, en það eru í sögunni dæmi um gífurlega eyðileggingu, til dæmis eftir síðari heimsstyrjöldina. Hugsum okkur Þýskaland og Frakkland, mikill fjandskapur ríkti milli þjóðanna eftir tvær heimsstyrjaldir, en þeim tókst að yfirstíga hann. Við megum aldrei gefast upp og ekki heldur trúa því að breytingar séu ómögulegar. Til þess þarf vissulega öfluga forystu og framtíðarsýn, auk þess að vinna markvisst að langtímamarkmiði, friði,“ segir hann og að leiðtogar í Ísrael hafi vissulega ekki slíka sýn.

Hann segist á sama tíma einnig hafa verulegar áhyggjur af stöðunni í Úkraínu. Síðustu daga og vikur hafa verið gerðar ítrekaðar árásir á bæði innviði og íbúabyggð.

„Ég hef gríðarlegar áhyggjur af því sem er að gerast, bæði af því hvernig átökin breiðast út og umfangi þeirra, sem og síharðnandi árásum Rússa á Úkraínu. Árásirnar beinast nú ekki lengur aðeins að orkuinnviðum. Þær hafa einnig beinst að matvöruverslunum og öðrum mikilvægum innviðum almennings, meðal annars lestum. Nú er stigmögnun í gangi og hún er mjög hættuleg.“

Gömul kona í leit að skjölum

Türk fór síðast til Úkraínu við upphaf stríðsins fyrir fjórum árum og heimsótti þá Kænugarð, Bútsja og Karkív og var á framvarðarlínu bardaganna.

„Þegar maður talar um eyðileggingu og sér heilt þorp lagt í rúst, ég man eftir gamalli konu sem ráfaði um rústirnar í leit að skjölum fjölskyldu sinnar. Það brýtur í manni hjartað. Svo eru það fjöldagrafirnar, þegar maður kemur að slíkum stað hugsar maður: Guð minn góður, er þetta það sem fólk hefur þurft að ganga í gegnum? Mér fannst ástandið þá afar dapurlegt. Samt var staðan þá betri en það sem fólk upplifir núna.“

Hann segir að sem dæmi megi sjá að með drónunum sem séu notaðir í dag og tækninni til að stýra þeim séu árásirnar að verða enn banvænni en áður.

Skrifstofa Türk gaf nýlega út skýrslu um kynferðisofbeldi af hálfu rússneskra hersveita í Úkraínu. Meðal niðurstaðna skýrslunnar var að rússneskar hersveitir hefðu beitt almenna borgara og stríðsfanga í Úkraínu miklu kynferðislegu ofbeldi. Tekið er fram í skýrslunni að hersveitir Úkraínu beiti líka slíku ofbeldi en hersveitir þeirra virðast bera ábyrgð á færri slíkum brotum en Rússar.

Í skýrslunni er fjallað um rúm þúsund staðfest tilvik kynferðisofbeldis frá því að stríðið hófst í febrúar árið 2022 og til júlí á þessu ári. Þolendur greindu í viðtölum frá hópnauðgunum, limlestingum og beitingu raflosts á kynfæri. Þolendur eru einna helst karlmenn, hermenn, sem eru í haldi en einnig konur og börn á hernumdum svæðum.

Türk segir að að öllum líkindum nái skýrslan ekki yfir umfang vandans.

„Fjöldinn er þegar mjög mikill en þegar þú ert búinn að ræða við meira en þúsund manns sem lýsa þeim hryllingi sem þau hafa verið beitt í formi kynferðisofbeldis sýnir það hversu útbreidd þessi háttsemi, sem er með öllu óásættanleg, er. Við höfum alltaf reynt að tryggja að kynferðisofbeldi sem notað er sem stríðsvopn sé fordæmt og að þeir sem beita því verði fyrir skömm. Ég tel að slíkt ofbeldi sé meðal annars notað til að niðurlægja, smána og svipta fólk mannlegri reisn.

Réttlætið láti stundum bíða eftir sér

Hann segir skráningu slíks ofbeldis eina leið til að draga þá til ábyrgðar síðar meir en það þurfi blöndu af.

„Það eru til alþjóðleg úrræði til að draga fólk til ábyrgðar. Ég tel að beita þurfi bæði innlendum og alþjóðlegum úrræðum. Réttlætið lætur yfirleitt bíða eftir sér, en fyrr eða síðar getur það náð til þeirra sem bera ábyrgð.“

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hefur áhyggjur af þróun gervigreindar. Vísir/Anton Brink

Eins og fram kom að ofan var Türk nýlega skipaður aftur í embætti mannréttindastjóra. Hann segir mörg stór mál á döfinni en nefnir fyrst „agentic AI“ sem er gervigreind sem er sjálfstæð eða nærri sjálfstæð gervigreind sem getur sett sér markmið, tekið ákvarðanir, skipulagt aðgerðir í mörgum skrefum og notað utanaðkomandi verkfæri með lágmarkseftirliti manna. Eitt dæmi um slíkt er líkan sem var í þróun hjá OpenAi þar til í september en hætt var við útgáfu þess af öryggisástæðum. Líkanið var sagt hafa sýnt af sér svikula hegðun og sagt hafa reynt að nota utanaðkomandi verkfæri þrátt fyrir að hafa vitað að það væri ekki öruggt.

„Eitt helsta forgangsmálið um þessar mundir er hvernig setja megi gervigreind skorður, einkum sjálfstæðri gervigreind og fullkomnustu gervigreindarkerfum. Mannréttindi eru mjög mikilvægur hluti þessara varna og við munum leggja mikla áherslu á það. Það eru rauð flögg í þessari nýju tækni, og sérstaklega í gervigreind, og það kvikna ýmis viðvörunarljós.“

Ekki sú gervigreind sem hann óttast

Hann segir svakalega möguleika í almennri notkun gervigreindar en sú gervigreind sem fólk notar dagsdaglega sé ekki endilega sú gervigreind sem hann óttast.

„Enginn skilur í raun sjálfstæða gervigreind til fulls, ekki einu sinni þeir sem hanna hana. Það eina sem við vitum er að ef mannleg stjórn er ekki tryggð getur hún orðið stórhættuleg, því við vitum ekki einu sinni hvaða skrímsli, eða mögulegu skrímsli, er verið að skapa. Það breytir því ekki að gervigreind getur haft jákvæð áhrif. En þegar flugvél er sett í notkun eða lyf markaðssett eru þau prófuð, eftirlit haft með þeim og sannprófunarkerfi notuð. Það er slíkt sem þarf.“

Hann segist óttast þróun gervigreindarinnar

„Við vitum ekki hvað gæti gerst með þessi kerfi. Það er hættan: ef mannleg stjórn tapast gætu þau lokað mikilvægum innviðum. Við sáum dæmi um þetta þegar þau reyndu að skríða út úr sandkassanum í sumar,“ segir hann og að það sýni að staðan sé grafalvarleg.

Hann segir stríð og frið annað sem þurfi að huga betur að. Það séu um 60 átök víða um heim.

„Við þurfum að losna úr þessari miklu hervæðingu og varnarmiðuðu hugsun sem virðist hafa smogið inn í svo stóran hluta stjórnmálanna í dag. Um 60 lönd eiga nú í stríði og við þurfum að leggja mun meiri áherslu á mannréttindasjónarmið, ekki aðeins þegar kemur að því að draga fólk til ábyrgðar, heldur einnig með því að grípa til aðgerða sem byggja upp traust út frá mannréttindum.“

Verði að berjast gegn bakslaginu

Þá segist hann hafa verulegar áhyggjur af bakslagi þegar kemur að kynjajafnrétti en einnig stimplun farandfólks og flóttafólks, hinsegin fólk sé gert að blórabögglum víða um heim og víða sé aukin kynþáttahyggja.

„Við þurfum að finna leiðir til að sporna við bakslaginu sem við sjáum. Við þurfum einnig almennt að berjast gegn einræðistilhneigingum og skerðingu lýðræðis og frelsis víða um heim, líka á Vesturlöndum. Árásir á blaðamenn og frjáls félagasamtök, og það hvernig rými borgaralegs samfélags þrengist í mörgum löndum, er þróun sem við verðum að fylgjast með og berjast gegn.“

#ekki #hvaða #skrímsli #verið #vitum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262948958d/-vitum-ekki-hvada-skrimsli-er-verid-ad-skapa-

📰 Aðrar fréttir

Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 1
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir...
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 1
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kó...
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
📅 17.10.2026 👁️ 1
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisú...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
📅 17.10.2026 👁️ 2
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum...
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
📅 17.10.2026 👁️ 1
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
The Israeli military condemns the violence but the prime minister's office says it is part of a "smear" campaign.
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
📅 17.10.2026 👁️ 1
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig Fréttin17. október 2026Dómsmál, ErlentLeave a Comment Bro...
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 2
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
„Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. H...
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
📅 17.10.2026 👁️ 1
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
BBC Scotland's political editor Glenn Campbell reflects on John Swinney's SNP conference speech.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
📅 17.10.2026 👁️ 3
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard B...
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið á...
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 3
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um s...
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagna...
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnaran...
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæm...
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
Franskur mótmælandi missti aðra höndina í borginni Saint-Etienne í dag. Þetta var annar mótmælandinn til að missa hönd í álíka aðstæðum í miklum mótmæ...
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
Persónuvernd vekur athygli á yfirlýsingunni í tilkynningu á vef sínum. Þar segir að gleraugun geti verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera notend...
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
Frá árinu 1972 hefur hlaupsekúndu verið bætt við klukkuna 27 sinnum. Nú hafa alþjóðleg samtök um mælieiningar ákveðið að afnema hana og taka upp hlaup...
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
Fjölmiðlafræðingurinn Íris Erlendsdóttir segir samfélagið okkar gera fáránlegar kröfur til karlmanna, þeir megi varla segja nokkuð sem gæti mögulega s...
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
📅 17.10.2026 👁️ 0
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
Goalkeeper Emiliano Martinez was taken to hospital as Chelsea's 2-0 win at Everton on Saturday meant they secured their first clean sheet in nine mont...
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fy...
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir 88 þjófnaðarbrot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjórtán mánaða fangelsi fyrir áttatíu og átta þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar yfir um eins og...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruð barna - Vísir
Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist ...
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna - Vísir
Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist ...
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu
📅 17.10.2026 👁️ 4
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í gærkvöldi vegna slyss á hálendinu
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Alvarleg líkamsárás á bifreiðastæði á Akureyri - Réðst á manninn sem hann taldi hafa brotið gegn dóttur sinni
📅 17.10.2026 👁️ 4
Alvarleg líkamsárás á bifreiðastæði á Akureyri - Réðst á manninn sem hann taldi hafa brotið gegn dóttur sinni
Karlmaður var með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað á bifreiðaverkstæði á Akureyr...
Kommúnistaflokkur Kína segist vilja auka samstarf við Samfylkinguna um stjórnarhætti
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kommúnistaflokkur Kína segist vilja auka samstarf við Samfylkinguna um stjórnarhætti
Kínverski kommúnistaflokkurinn segist reiðubúinn að auka samstarf við Samfylkinguna og aðra helstu stjórnmálaflokka Íslands um stjórnarhætti og stjórn...
Fjárhagslegt tjón vegna álfta „léttilega“ tugir milljóna
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjárhagslegt tjón vegna álfta „léttilega“ tugir milljóna
Kornbóndi á Suðurlandi segir að fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrunum geti numið tugum milljóna króna.Hann vill að fólk sem stundar kornrækt ...
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki
Kosningar í USA- Lýðræði eða forsjárhyggjuríki Fréttin17. október 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, Kosningar, TrumpLeave a Comment Helga Dögg Sve...
Telja eldsvoða með öllu ótengda
📅 17.10.2026 👁️ 4
Telja eldsvoða með öllu ótengda
Aðstandendur Rio Tinto á Íslandi telja enga tengingu vera á milli tveggja eldsvoða í álverinu í Straumsvík. Þar kviknaði í sitt hvorum áltökubílnum me...
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp
📅 17.10.2026 👁️ 4
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp
Íran segir ofurtankskip hafa rekist á tundurdufl í Hormussundi – gríðarlegur eldur sagður hafa komið upp Fréttin17. október 2026ErlentLeave a Comment ...
Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í færslu sem birt var á Facebook-síðu lögreglunnar en þar segir að skömmu eftir 20:30 í gærkvöldi hafi viðbragðsaði...
Sigmundur Ernir skrifar: Heimska hægrið snýr klukkunni við
📅 17.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Heimska hægrið snýr klukkunni við
Mynd Víða um jarðir er frelsi, jafnrétti og bræðralag á undanhal
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“ Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, segir feg­urð­ar­skyn fólks byggja á gild­is­mat...
Kannast ekki við lýsingar Jóns - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kannast ekki við lýsingar Jóns - Vísir
Í þætti Spursmála í gær sagði Jón Gnarr, sem sagði sig í vikunni úr þingflokki Viðreisnar, að það andaði köldu milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,...
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið í nótt
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið í nótt
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld ásamt lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vegna tilkynningar um slys á hálendinu norðan Vatn...
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld ásamt lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vegna tilkynningar um slys á hálendinu norðan Vatn...
Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu - Vísir
„Ég bjóst við að fá svona svar eftir kannski svona eitt, tvö ár eða eitthvað,“ segir Ylfa í samtali við blaðamann Vísis en hún hafi verið mjög hissa á...
Páfi útskrifaður af sjúkrahúsi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Páfi útskrifaður af sjúkrahúsi
Leó XIV páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í dag. Hann gekkst undir aðgerð vegna lungnakrabbameins á þriðjudag þar sem hluti annars lungans var fjarlæ...
Mót­mælendur réðust inn í ráð­húsið í Marseille - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Mót­mælendur réðust inn í ráð­húsið í Marseille - Vísir
Lögreglumenn hafa beitt mótmælendur táragasi í París, Bordeaux og Lyon samkvæmt vef BBC. Þar kemur einnig fram að myndefni frá AFP-fréttastofunni sýni...
More NHS staff sacked over Nottingham attacks victims' records
📅 17.10.2026 👁️ 4
More NHS staff sacked over Nottingham attacks victims' records
Nottingham University Hospitals NHS Trust says a new system will be brought in to protect records.
Passenger airlifted from Scarlet Lady cruise ship near Tenerife
📅 17.10.2026 👁️ 4
Passenger airlifted from Scarlet Lady cruise ship near Tenerife
A 62-year-old American woman was airlifted from a cruise ship off Tenerife during a medical evacuation in the early hours of this morning, Saturday 17...
Violent clashes between police and protesters in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Violent clashes between police and protesters in Albania
Police in Albania's capital Tirana have fired tear gas and water cannons onto crowds gathered outside the Ministry of Education where students are amo...
Nýtti sér reynslu úr leigubílaakstri í spennusögu og punktaði hjá sér milli túra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Nýtti sér reynslu úr leigubílaakstri í spennusögu og punktaði hjá sér milli túra
Leigubíl finnst brunninn við Reynisvatn og undir stýri eru illa farnar líkamsleifar bílstjórans. Fljótlega kemur í ljós að maðurinn var myrtur áður en...
Örn Árna­son fimmti keppandinn í Taskma­ster - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Örn Árna­son fimmti keppandinn í Taskma­ster - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að þau Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingama...
UK must protect against Russian 'hybrid attacks', ex-national security adviser says
📅 17.10.2026 👁️ 4
UK must protect against Russian 'hybrid attacks', ex-national security adviser says
Lord Ricketts says more should be spent on improving the resilience of energy, transport, air traffic control and defence sites.
Þakplötur losnuðu af íþróttahúsinu Grundarfirði
📅 17.10.2026 👁️ 4
Þakplötur losnuðu af íþróttahúsinu Grundarfirði
Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út á Grundarfirði þegar þakplötur byrjuðu að losna af íþróttahúsi bæjarins. Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstun...
„Kerfi sem mega aldrei klikka“
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Kerfi sem mega aldrei klikka“
Fregnir af andláti Tetra-kerfisins eru stórlega ýktar, segir sérfræðingur í talstöðvarkerfum og neyðarsamskiptum. Mikilvægt sé að fara ekki of geyst v...