Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur hundruð fimmtíu og fimm milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur og sagði formaður þróunarsjóðs námsgagna í kjölfar tilkynningar ráðherra að hún óttaðist að fjármagnið myndi ekki rata rétta leið.
Að loknum ríkisstjórnarfundi í gær sagði Inga Sæland að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvernig fénu yrði varið.
„Nei, nei, það er ekki gert og það er algjörlega bara í samráði við okkur inni í menntamálaráðuneytinu og ég hef það sem ráðherra mitt að segja, það náttúrulega liggur alveg ljóst fyrir og ég vil líta til landa þar sem eru afburðanámsgögn og við höfum samanburð frá öðrum löndum og við bara tileinkum okkur þar sem okkur gengur best og er talið að það séu bestu námsgögnin.“
Sjá einnig: Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum
Reyna að fá sem mest fyrir peninginn
Hún segir að reynt verði að fá sem mest fyrir peninginn.
„Það kemur mjög svo til greina að þýða erlendar bækur og það kemur líka mjög svo til greina að taka inn tækni sem við þekkjum sem heitir gervigreind og láta hana grunnvinna kannski eitthvað og annað slíkt. Og ég sé fyrir mér að við fáum jafnvel mun meira fyrir peninginn eftir en áður.“
Upphæðin hærri
Inga segir að áhersla verði lögð á svokallaðar stem-greinar, fræðigreinar á sviði verkfræði, raunvísinda, tækni, tölvunarfræði og náttúruvísinda. Upphæðin verði hærri en áður var tilkynnt, gildi fyrir næsta ár og sé inni í fjárlögum.
„Við leggjum líka áherslu á að koma með námsgögn inn í STEAM-greinarnar okkar sem er í rauninni algjörlega í samfellu við atvinnustefnu ríkisstjórnar. Við erum að leggja ríkari áherslu á STEAM-greinar þannig að þetta verða um 700 milljónir, hátt í 700 milljónir þegar upp er staðið. Þetta verða 455 milljónir í annað eins STEAM,“ sagði Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra.