Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári.
Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir, sem er 25 ára bókasafnsvörður, Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, 24 ára verkamaður, og Viktor Árnason, 23 ára líffræðingur.
Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun í þremur köflum er varða síónisma, gervigreind og jafnrétti.
Í ályktuninni kemur fram að UVG styðju ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 3379 frá 1975, sem skilgreinir síonisma sem kynþáttahatur, og ályktun Græningja Englands og Wales/Cymru um sama efni frá flokksþingi þeirra í ár. ngliðahreyfingin hvetur til þess að VG geri hið sama á flokkstigi.
Þá álykta ungliðarnir gegn notkun gervigreindar:
„Þar sem að gervigreind hefur á örfáum árum leitt til niðurbrots lýðræðisríkja, aukins eftirlits með almennum borgurum, stríðsglæpa, versnandi kjara verkafólks og er óhóflega kræf á lífsnauðsynlegar náttúruauðlindir, telur UVG gervigreind í núverandi formi og mynd vera ógagn fyrir mannkynið og plánetuna sem við byggjum. Því einsetur UVG sér að sýna fordæmi og ályktar að hún noti ekki „skapandi“ gervigreind í sínu starfi,“ segir í ályktuninni þar sem tekið er fram að hreyfingin muni eftir fremsta megni styðja við manngerða menningu og listir í þeim auglýsingum, viðburðum og verkefnum sem hún tekur þátt í, sérstaklega til stuðnings ungum listamönnum.
„Ásamt því skuldbindur UVG sig að segja sig skilyrðislaust úr samstarfsverkefnum í framtíðinni ef samstarfsaðilar gerast sekir um beitingu gervigreindar. UVG hvetur einnig allar aðrar ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka að gera hið sama.“
Að lokum er ályktað um jafnrétti þar sem fram kemur að mikilvægt sé að hreyfingin lyfti upp röddum kvenna og kvára og valdefli þau.
„Okkur ber að líta til ungliðahreyfinga á sama reki og við í nágrannalöndunum og sækjast eftir að læra af þeim og sækja innblástur í þessum málum. Sem dæmi má nefna jafnréttisstefnu ungra rauðingja í Noregi (Rødt Ungdom).“