Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka atvinnuleysi. Bankinn hafi spilað með líf fólks og afkomu.
„Seðlabankinn gengið allt of langt“
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sagði í Spursmálum Morgunblaðsins að Seðlabankinn hefði séð fyrir að ólíklegt væri að hægt væri að ná verðbólgumarkmiðum kjarasamninga. „Við getum kannski ekki minnkað verðbólgu en við getum búið til þær efnahagsaðstæður þar sem að verður ekki áhugi fyrir að segja þeim upp, það er að segja að búa til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum. Og mér sýnist okkur hafa tekist það,“ sagði Þórarinn í viðtali við Stefán Einar Stefánsson.
Ragnar Þór segir að þarna hafi Seðlabankinn gengið allt of langt. „Seðlabankinn hefur það hlutverk að halda hér verðstöðugleika, tryggja hér góð lífsgæði, meðal annars að halda verðbólgu niðri, en þarna finnst mér Seðlabankinn hafa gengið allt of langt.“
Hvað finnst þér um það sem fyrrverandi verkalýðsleiðtogi, eins og hann lýsir þessu þá hljómar þetta eins og það sé verið að spila með verkalýðshreyfinguna?
„Það er í rauninni bara verið að spila með líf fólks, fólk sem missir vinnu og fellur í tekjum og getur ekki staðið við sínar skuldbindingar eða átt fyrir nauðsynjum eða því um líkt, að geta greitt af lánum eða húsaleigu. Þetta er bara háalvarlegt mál,“ segir Ragnar Þór.
Er honum stætt í starfi? „Ég ætla ekki að vera með stórar yfirlýsingar um það en ég er verulega hugsi yfir þessari yfirlýsingu og aðferðafræði Seðlabankans og það er eitthvað sem við þurfum að ræða í breiðara samhengi,“ segir Ragnar Þór.
Fullt tilefni til að slaka á hávaxtastefnu
Ragnar telur það að skapa efnahagsaðstæður sem auki atvinnuleysi vera í mótsögn við markmið Seðlabankans. „Þessi orð varaseðlabankastjóra eru í ákveðinni mótsögn við þrýsting bankans um að við skilum hallalausum fjárlögum, náum jafnvægi í ríkisrekstri,“ segir Ragnar Þór. Kostnaðurinn falli á ríkissjóð. „Þrýstingur bankans á aukið atvinnuleysi kostar þjóðarbúið gríðarlegar upphæðir, þetta getur hlaupið á tugum milljörðum á ári.“
Ef markmiðið með háum stýrivöxtum hafi verið að halda kjarasamningum gangandi þá hafi það náðst við undirritun samninga í síðustu viku. Hann veltir fyrir sér hvort þetta kalli á breytta nálgun við ákvörðun stýrivaxta. „Það ætti þá að vera fullt tilefni til að Seðlabankinn slaki núna á þessari hávaxtastefnu sem hefur gengið því miður allt of lengi.“
Viðtal við Ragnar Þór má sjá hér fyrir neðan.