Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og lést af sárum sínum í dag. Nafns konunnar hefur ekki verið getið en komið hefur fram að hún vann með ungu fólki í sveitarfélaginu.
Tveir drengir undir átján ára aldri eru í haldi grunaðir um manndráp. Sænska ríkisútvarpið, SVT, hefur eftir lögreglu að drengirnir séu ekki búsettir í Stokkhólmi og virðast ekki hafa nein tengsl við fórnarlambið. Þeir hafa báðir neitað sök.
Leit stóð yfir í margar klukkustundir
Fjöldi manns var viðstaddur íþróttaleiki í nokkrum sölum íþróttahallarinnar, Kämpetorpshallarna, þegar skotunum var hleypt af. Árásarmennirnir komust undan áður en lögreglu bar að og leit stóð yfir í margar klukkustundir.
Þá var talsverður viðbúnaður við íþróttahöllina eftir árásina. Lögregla girti stórt svæði af og yfirheyrði fjölda manns.
Tengist mögulega hefnd gegn ættingja
Tilefni árásarinnar er enn þá á huldu. Heimildir SVT herma þó að hugsanlega tengist það hefnd gegn nánum ættingja konunnar sem var ákærður og síðar sýknaður fyrir tilraun til morðs árið tvö þúsund tuttugu og þrjú.
Kristoffer Olofsson lögreglustjóri segir þó að rannsókn málsins sé ekki komin nægilega langt til að spá fyrir um hvort hætta sé á hefndum vegna árásarinnar.