Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.
Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólanemar, köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu.
Lögreglan reyndi að verja menntamálaráðuneytið, sem hefur orðið einn af miðpunktum mótmælanna, og svaraði með táragasi og vatnsbyssum til að tvístra hópnum. Þá herma heimildir breska ríkisútvarpsins að gúmmíkúlur hafi verið notaðar í fyrsta sinn.
Segir erlend öfl standa að baki mótmælum
Mótmælaaldan í Albaníu hófst í háskólum þar sem nemendur kröfðust afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama vegna lélegra aðstæðna í skólum og hárra skólagjalda. Upptök þeirra má þó rekja jafnvel enn lengra aftur, eða til fyrirætlana um framkvæmdir við ferðamannaparadís á verndarsvæði.
Jared Kushner og Ivanka Trump, tengdasonur og dóttir Bandaríkjaforseta, eru meðal fjárfesta en á framkvæmdasvæðinu er fyrir þjóðgarður og griðastaður um 200 fuglategunda sem sumar eru í útrýmingarhættu.
Rama forsætisráðherra segir erlend öfl standa að baki eyðileggingunni. Grímuklætt fólk brenni og eyðileggi til þess að kynda undir ólgu og koma í veg fyrir tilraunir stjórnvalda til þess að ganga í Evrópusambandið.