Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndir.
Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni vegna meintrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu sinni á Íslandi.
Hvernig komst Ölgerðin í þessa markaðsráðandi stöðu á Íslandi? Samkvæmt áliti Samkepppniseftirlitsins um samruna Ölgerðarinnar og Gæðabaksturs og Kjarnavara frá því í september er Ölgerðin með 40 til 45 prósent markaðshlutdeild á drykkjavörumarkaði á Íslandi í dag.
Fyrir 25 árum var Vífilfell í þessari sömu stöðu á Íslandi en ekki Ölgerðin. Vífilfell var risinn, stóri bróðir en Ölgerðin var litli keppinauturinn. Markaðshlutdeild Vífilfells var 40 til 50 prósent á drykkjarvörumarkaði árið 2011 og hafði verið enn þá meiri.
Einn viðmælandi fréttastofu sem ekki vill koma fram undir nafni sem starfaði hjá Ölgerðinni í mörg ár segir að eftir aldamótin síðustu hafi Vífilfell verið með um 80 til 90 prósent hlutdeild á drykkjarvörumarkaði á veitingahúsum. Kókið var allsráðandi, Pepsíið í aukahlutverki. Hann segir að Ölgerðin hafi tapað fyrir Vífilfelli í 9 af hverjum 10 skiptum.
Frétttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði ítarlega um eðli meintra brota Ölgerðarinnar í vikunni. Þar kom meðal annars fram að Ölgerðin gerði svokallaða einkaréttarsamninga við viðskiptavini sem meina þeim að eiga í viðskiptum við önnur fyrirtæki.
Samkeppnisetirlitið hefur líka áður slegið á puttana á Vífilfelli fyrir sams skonar einkaréttarsamninga. Þetta var árið 2011 þegar Samkeppniseftirlitið sektaði Vífilfell fyrir sams konar hluti og nú eru til skoðunar hjá Ölgerðinni. Fyrir einkaréttarsamninga, fyrir að veita lán til viðskiptavina sinna, fyrir að útiloka samkeppni. Hæstiréttur Íslands átti síðar eftir að fella sektirnar úr gildi en ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var harðorð og hafði sín áhrif.
Fjallað er um þennan áratugalanga ríg á milli þessara framleiðenda á kók og pepsí á Íslandi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Andri sagði Ölgerðina einu sinni hafa verið undir
Andri Þór Guðmundsson, sem lengi var forstjóri Ölgerðarinnar og er hluthafi og stjórnarformaður móðurfélags fyrirtækisins í dag, kom inn á það í viðtali við fréttastofu í vikunni að Ölgerðin hafi einu sinni verið undir í baráttunni við Vífilfell. Hann orðaði það þannig að Ölgerðin þekkti það að vera litli aðilinn á drykkjarvörumarkaði.
Í viðtalinu sagði Andri Þór orðrétt: „Jú, okkur hefur vaxið ásmegin undanfarna tvo áratugi. Við þekkjum sannarlega að vera minni aðilinn á markaði. Við, hér fyrir 20 árum, vorum minni aðilinn.“
Sögur um djúpan, persónulegan ríg
En hvernig eru sögurnar um ríginn á milli fyrirtækjanna tveggja? Hvernig var kalda stríðið á milli kók og pepsí á Íslandi? Þessar sögur eru margar og skrautlegar.
Einn fyrrverandi starfsmaður Vífilfells gaf höfuðstöðvum Ölgerðarinnar til dæmis alltaf fokkmerki út um gluggann á bílnum sínum þegar hann keyrði framhjá þeim og lét börnin sín senda húsinu fingurinn líka.
Stjórnandi hjá Ölgerðinni lét sækja Pepsí fyrir sig í annað sveitarfélag þegar hann var í veiðiferð úti á landi af því það var bara til kók í veiðihúsinu.
Starfsmaður Vífilfells sem var afreksmaður í íþróttum neitaði að klæðast úlpu félagsins síns af því hún var merkt Pepsi og stjórnandi hjá Vífilfelli lét starfsfólk á veitingahúsi í Reykjavík fara út í búð fyrir sig og kaupa kók með matnum af því veitingastaðurinn átti bara Pepsí.
Svo er það sagan af Skallasjoppunni fyrir utan höfuðstöðvar Ölgerðarinnar á Hálsunum sem auglýsti alltaf kók á flennistóru skilti sem blasti við vegfarendum.
Í um áratug reyndu stjórnendur Ölgerðarinnar að fá eiganda sjoppunnar til að skipta úr Coca Cola og yfir í Pepsí í sjoppunni og þá um leið að losna við þetta auglýsingaskilti sem starfsfólk Ölgerðarinnar þurfi að horfa á á hverjum degi.
Ölgerðin ítekað að fá eigandann til að velja pepsí en ekki kók, Ölgerðina en ekki Vífilfell, en ekkert gekk. Svo á endanum gaf eigandinn sig og samdi við Ölgerðina, auglýsingaskiltið með kókinu hvarf og viðskiptavinir Skallasjoppunnar fengu nú Pepsí með hamborgaranum sínum.
Þetta var víst lítill en táknrænn sigur hjá stjórnendum Ölgerðarinnar samkvæmt heimildum fréttastofu.