Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz Ventura.
Verðlaunaféð jafngildir 136 milljónum íslenskra króna en Premio Planeta-verðlaununum fylgir hæsta fjárhæð allra bókmenntaverðlauna í heiminum.
Stundin fyrir sólrisu
Allende er hvað frægust fyrir fyrstu bók sína, Hús andanna, sem gefin var út árið nítján hundruð áttatíu og tvö. Nýja verðlaunabókin er framhald þeirrar bókar og kæmi því á óvart ef dómnefnd Premio Planeta-verðlaunanna hefði ekki séð í gegnum dulnefnið.
Nýja bókin heitir La hora ante des alba, sem gæti útlagst á íslensku sem Stundin fyrir sólrisu, en spænski titillinn vísar jafnframt til aðalsöguhetjunnar sem heitir Alba.
Bókin var send inn sem óútgefið handrit þar sem verðlaunin eru haldin af útgáfufyrirtækinu Planeta og skilyrði fyrir þátttöku er að fyrirtækið annist útgáfu sigurbókarinnar.
Tengir bókina við uppgang öfgahyggju
Í ræðu á verðlaunaathöfninni sagði Allende auðvelt að sjá atburði bókarinnar, sem tengjast stjórnartíð síleska einræðisherrans Augusto Pinochet, í ljósi uppgangs öfgahyggju í heiminum.
Sjálf var Allende tilneydd til að flýja frá Síle eftir valdarán Pinochets árið 1973 þegar frænda hennar, Salvador Allende, var steypt af stóli. Í stjórnartíð Pinochets er talið að um 40 þúsund manns hafi verið pyntaðir og yfir 3000 myrtir.
„Nú þegar ég sé svo mörgum lýðræðisríkjum ógnað af alræðishyggju, öfgafullri þjóðernishyggju og jafnvel fasisma, þá finn ég aftur til þess ótta sem leiddi til þess að ég yfirgaf landið mitt,“ sagði Allende í ræðu sinni.
Bækur Isabel Allende hafa verið seldar í meira en 80 milljón eintökum um allan heim og þýddar á fleiri en 40 tungumál.