JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta segir Vance í nýlegri færslu á samfélagsmiðlinum X.
Hann segir frjálslynda Vesturlandabúa hafa flutt þriðja heiminn inn til Frakklands og annarra landa í nafni fjölbreytni og mannúðar. Hins vegar hafi þau hundsað grundvallarspurningar um aðlögun og samrýmanleika.
„Þeim var sagt að það myndi leiða til þessa og þau hlustuðu ekki,“ segir Vance. „Ég bið þess að Frakkland, fallegt land dásamlegs fólks, stöðvi þessa sturlun áður en fleiri kennileiti þess brenna.“
Vance er talinn líklegur til að bjóða sig fram til forseta í næstu forsetakosningum árið tvö þúsund tuttugu og átta. Hann nýtti tækifærið til að spyrða ástandið í Frakklandi við stefnumál demókrata í Bandaríkjunum.
„Ég vona að Bandaríkjamenn veiti þessu athygli. Þetta er sú framtíð sem þingmenn demókrata sjá fyrir landið þitt,“ segir JD Vance.
Brenna byggingar og fara ránshendi um búðir
Mótmælin í Frakklandi hafa snúist upp í óeirðir en mótmælendur hafa brennt opinberar byggingar, sumar þeirra sögulega gamlar, og brotist inn í búðir.
Í París fóru hópar grímuklæddra manna um og rifu niður rimla fyrir búðargluggum til að komast inn og láta greipar sópa. Sólgleraugu, föt, skartgripir og forngripir hafa horfið eins og dögg fyrir sólu og þá hafa kjörbúðir verið tæmdar af varningi.