Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna og heimsins. Þetta útskýrði utanríkisráðherra Bandaríkjanna Marco Rubio í samtali við fréttaveituna AFP.
Hann segir forsetann ætla að gera 60 daga hlé á þvingununum til að sjá hver áhrifin verða og bendir á að viðskiptaþvinganir nái til fleiri landa en Rússlands. Átök víðar um heiminn hafi áhrif á orkuverð, þar á meðal stríð Bandaríkjanna við Íran og árásir Húta í Sádi-Arabíu.
„Þessi átök um allan heim eru byrjuð að rekast á og þau hafa ekki aðeins áhrif á olíu- og dísilverð, heldur einnig á hagkerfi,“ segir Rubio.
Gagnrýndur á báða bóga
Trump hefur verið gagnrýndur af bæði demókrötum og repúblikönum fyrir að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi, en hann skrifaði undir forsetatilskipun þess efnis á föstudaginn.
Aðeins er um mánuður síðan þvinganirnar, sem þingið kom sér saman um, voru teknar upp. Þær beindust gegn orku- og varnarmálaiðnaði Rússlands, Vladímír Pútín forseta og öðrum háttsettum embættismönnum, sem og gegn skuggaflota Rússlands.
Markmiðið með þvingununum var að takmarka að fjármagn rynni til stuðningsmanna Pútíns.