Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.
„Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond.
Birta Huld er hársnyrtir hjá Session hárstofu en hún átti einmitt 26 ára afmæli í dag.
Sigurður er 31 árs en hann er fyrrverandi knattspyrnumaður og lék áður með FH. Í dag er hann fyrirferðamikill í umræðu um íslenska knattspyrnu og er tíður gestur í hlaðvarpinu Dr. Football. Hann fékk eftirnafni sínu breytt í Bond árið 2021.
Í sumar vakti Sigurður mikla athygli þegar hann birtist óvænt í myndbandi hjá bresku YouTube-stjörnunni Angry Ginge sem sakaði Íslendinginn um kynþáttafordóma á leik Englands og Gana á HM í fótbolta.