Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búist við sunnan og suðvestan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu. Rigningin muni þó lítið sem ekkert ná yfir á norðausturhornið frekar en í gær. Hiti verður á bilinu sex til 12 stig.
Þá segir að í fyrramálið sé einnig spáð allhvassri eða hvassri suðvestanátt með skúrum sunnan- og vestantil. Síðan á að lægja smám saman en aftur fara að rigna á sunnanverðu landinu. Þá kólnar örlítið en hiti verður á bilinu fjögur til 10 stig.
Á vef Vegagerðarinnar segir að frá klukkan 12:00 í dag, sunnudaginn 18. október, milli Hafnar og Reyðarfjarðar sé varað við því að vera á ferðinni á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Komið geti til einhverra lokana á vegum með stuttum fyrirvara vegna mikils vinds.
Víða eru hálkublettir og vetrarfærð og vegfarendur hvattir til að fara með gát. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og færð vega á vef Vegagerðarinnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Suðvestan 10-18 m/s í fyrstu, en lægir smám saman. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöld. Hiti 4 til 10 stig.
Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8, en sunnan 8-13 austast. Rigning eða slydda austantil, en smáskúrir eða slydduél vestanlands. Heldur kólnandi.
Á miðvikudag: Breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar rigning eða slydda við ströndina. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en um eða undir frostmarki inn til landsins.
Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt. Rigning eða slydda með köflum sunnanlands, en dálítil él á Norðurlandi. Hiti breytist lítið.
Á föstudag: Útlit fyrir norðanátt með éljum á víð og dreif, en slyddu eða rigningu suðaustantil. Hiti kringum frostmark.
Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Norðlæg eða breytileg átt og stöku él norðan- og austantil á landinu.