Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Heimurinn er kominn yfir sjö af níu þolmörkum jarðar. Prófessorinn Johan Rockström segir þróunina áhyggjuefni en að lausnir séu þegar til staðar. Smáríki þurfi að taka þátt í að leiða sjálfbæra framtíð. „Þetta er kapphlaup og það er eins gott að taka þátt í ferðalaginu eða þið verðið skilin eftir,“ segir prófessorinn.
„Þetta vekur frekar djúpstæðar áhyggjur,“ segir Johan Rockström, prófessor og forstöðumaður Potsdam Institute for Climate Impact Research, um niðurstöður Planetary Health Check 2026. Skýrslan kom út í september en hún fer yfir stöðu jarðar út frá níu þolmörkum sem vísindamenn skilgreina sem lykilkerfi fyrir lífvænlega jörð. Niðurstöður sýna að við erum komin út fyrir sjö af níu þolmörkum jarðar.
Slíkt kemur Rockström ekki á óvart en í fyrsta sinn var þróun þolmarkanna skoðuð og olli það áhyggjum.