Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn.
Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í fangaklefa og alls 74 mál bókuð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 í gær til fimm í morgun.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ökumönnum vegna ýmissa umferðarlagabrota og vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp í bæði Hafnarfirði og Grafarvogi.
Þá segir að lögregla hafi einnig haft afskipti af einstaklingi sem var til vandræða í líkamsræktarstöð. Ekki kemur fram hvar en Stöð 1 sinnti útkallinu sem sinnir útköllum í vesturhluta borgarinnar.