Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþyngsta flugvelli landsins.
AFP-fréttaveitan hefur eftir Alexander Drozdenko ríkisstjóra Leníngrad-héraðs að 126 drónar hafi verið skotnir niður. Brak féll á heimili, bíla og rafmagnslínur og olli það skammvinnu rafmagnsleysi. Enginn særðist í árásinni en hins vegar kviknaði í olíustöð Sankti Pétursborgar.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í vikunni að Úkraínuher muni halda áfram að gera atlögu að rússneskum olíuhreinsunarstöðvum þrátt fyrir ítrekaða gagnrýni Donalds Trump Bandaríkjaforseta.