Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og varð fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar hjá aldurshópnum samhliða því.
Í síðustu viku var greint frá því að heilbrigðisráðuneytið hefði tryggt áframhaldandi fjármögnun fyrir bólusetningu gegn RS-veirunni og að börnum yngri en sex mánaða yrði áfram boðið upp á slíka vörn.
Nanna skrifar um málið í aðsendri grein á Vísi í dag. Hún segir það frábærar fréttir að áfram verði boðið upp á slíka bólusetningu og hún hafi verið ákveðin í að þiggja hana en ekki getað það því stjórnvöld telji ekki þörf á því.
Munur á að fæðast í apríl eða maí?
„En hvernig má það vera, ætli vírusinn ráðist í manngreiningarálit? Börn sem fæðast á skilgreindu RS-tímabili, október til mars, fá boð um bólusetningu ásamt þeim sem ekki hafa náð sex mánaða aldri fyrir 1. nóvember, það eru börn fædd 1. maí og út september. Börn sem fædd eru á þessu 30 daga millibilstímabili, í apríl, eru ekki talin þurfa aukna vörn gegn vírusnum, enda augljóslega reginmunur á því að fæðast 30. apríl eða 1. maí, eða hvað?“
Nanna bendir á að í Bandaríkjunum sé miðað við að öll börn séu viðkvæm fyrir vírusnum fyrstu átta mánuði lífs síns og að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) telji að ávinningur geti verið af bólusetningu barna allt að 12 mánaða.
Fjárhagsleg ákvörðun eða hugsunarleysi
Nanna spyr því hvort og spyr hvort það hafi verið hugsunarleysi að undanskilja einn fæðingarmánuð barna.
„Eru til ítarlegar greiningar sem sýna fram á að börn fædd í apríl veikist ekki alvarlega ef þau fá vírusinn? Eða er þetta kannski aðeins fjárhagsleg ákvörðun sem verður þess valdandi að foreldrar þessara u.þ.b. 300 barna sem fædd eru í apríl fá ekki val um að þiggja bólusetninguna?“ spyr Nanna sem vill að börnin fái að njóta vafans.
„Nú er haustið gengið í garð og fyrsti vetur lítilla kríla fram undan.“