Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum

Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum

Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum

Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósamt land eða ferðamenn sem koma í leit að sól og ævintýrum. Slíkar atvinnugreinar hafa oft vaxið og þróast í áratugi og byggja jafnvel á aldagömlum hefðum.

En stundum þarf hvorki að leita að olíu né sækja verðmæti úr sjó. Stundum nægja tveir bókstafir og dálítil heppni. Það varð raunin með Angvilla, sem er lítil eyja og breskt yfirráðasvæði í Karíbahafi, austur af Púertó Ríkó og rétt norðan við eyjuna Sankti Martin. Þar búa um 16 þúsund manns, svipaður fjöldi og í Mosfellsbæ.

Þegar Angvilla fékk landslénið sitt á veraldarvefnum fékk það endinguna punktur ai. Lengi vel voru þetta einfaldlega tveir bókstafir sem vísuðu til nafns eyjunnar. Síðan varð gervigreind að einni stærstu tæknibyltingu samtímans og bókstafirnir ai fengu allt aðra merkingu.

Skyndilega reyndust tveir bókstafir vera stafrænn lukkupottur fyrir þessa fámennu eyju. Til að skilja hvernig þetta gat gerst þurfum við að fara aftur til upphafsára internetsins.

Hvers vegna fékk Angvilla .ai?

Á fyrstu árum þess var haldið utan um nöfn nettengdra tölva í einni sameiginlegri skrá. Það gekk vel á meðan tölvurnar voru fáar. Þegar þeim fjölgaði þurfti nýtt kerfi og þá varð lénakerfið, eða DNS, til. Það gerir okkur kleift að slá inn nafn vefsíðu í stað þess að þurfa að muna langa talnarunu.

Árið 1984 voru lagðar línurnar að endingum á borð við .com og .org, auk tveggja stafa landsléna. Stafirnir voru ekki fundnir upp sérstaklega fyrir Internetið heldur teknir af alþjóðlegum lista.

Rekstur landslénanna var síðan falinn ábyrgum aðilum í hverju landi eða landsvæði. Hér á landi annast ISNIC skráningu og rekstur íslenska landslénsins, punktur is.

Punktur ai var formlega skráð sem landslén Angvilla árið 1995 og stjórnvöld þar fara nú með umsjón þess.

AI hafði þá lengi verið notað sem ensk skammstöfun fyrir gervigreind eða artificial intelligence. Fáir gátu þó séð það fyrir hversu verðmætir þessir tveir bókstafir ættu eftir að verða.

Fjallað var um málið í Heimskviðum vikunnar. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan.

Samfélagið fyrir og eftir

Angvilla fékk því þessa tvo bókstafi fyrir tilviljun. En til að skilja hvers virði sú tilviljun varð þurfum við fyrst að skoða efnahag eyjunnar og hversu miklu máli nokkrar milljónir dollara geta skipt fyrir samfélag af þessari stærð.

Það hefur löngum verið erfitt að draga björg í bú á Angvilla. Breskir landnemar reyndu þar bómullar- og sykurrækt með vinnu þræla en þurrt loftslag og grýttur jarðvegur gerðu ræktun erfiða og landbúnaður varð aldrei sterk undirstaða efnahagslífsins. Íbúar sóttu því frekar til sjávar, veiddu fisk og smíðuðu báta.

Undanfarin ár hefur önnur auðlind borið hagkerfið uppi: hvítar strendur og þægilegt loftslag.

Ferðaþjónusta er helsta atvinnugrein Angvilla, með áherslu á lúxusferðamennsku en sú tekjulind getur verið óstöðug. Rétt fyrir heimsfaraldurinn var landsframleiðsla Angvilla tæplega 380 milljónir bandaríkjadala. Til samanburðar jafngilti það um einu og hálfu prósenti af landsframleiðslu Íslands sama ár. Þegar ferðalög gott sem stöðvuðust árið eftir dróst hagkerfið saman um rúman fjórðung.

Ferðamennirnir sneru þó aftur og hagkerfið tók við sér. Um svipað leyti hafði Angvilla skyndilega eignast tekjulind sem þurfti hvorki fleiri flugsæti né hótelherbergi. Hún var þegar til staðar í landsléninu punktur ai.

Landslénið hafði lengi skilað tekjum í ríkissjóð en áður en gervigreindarbylgjan hófst voru þær um fimm prósent af tekjum hins opinbera. Síðan varð ai ein þekktasta skammstöfun tæknigeirans. Eftir að gervigreindarforritið ChatGPT kom fram undir lok árs 2022 tók eftirspurnin stökk.

Á aðeins einu ári meira en tvöfaldaðist fjöldi léna með endingunni punktur ai. Þau voru 144 þúsund árið 2022 en 354 þúsund ári síðar. Vöxturinn hélt áfram og nú nálgast fjöldinn eina og hálfa milljón. Hann hefur því nær tífaldast frá árinu 2022. Stjórnvöld á Angvilla hafa tekjur af nýskráningum og endurnýjunum, auk uppboða á útrunnum lénum. Fjölgunin hefur því skilað miklum tekjuauka í ríkissjóð.

Árið 2025 skilaði landslén Angvilla um 85 milljónum bandaríkjadala í ríkissjóð, eða rúmlega tíu milljörðum íslenskra króna. Tekjurnar höfðu þá meira en tvöfaldast frá 2023 og námu rúmum 40 prósentum af heildartekjum hins opinbera það ár. Fyrir samfélag með aðeins um 16 þúsund íbúa var þetta engin smá upphæð.

Hvað er Angvilla að selja?

Angvilla fann ekki upp gervigreindina en þegar uppgangur hennar hófst fóru tveir bókstafir, sem eyjunni höfðu fallið í skaut nær þrjátíu árum áður, skyndilega að skila nokkrum milljörðum króna á ári.

José Vanterpool, ráðherra upplýsingatækni og innviða á Angvilla, var í viðtali við BBC Radio í fyrra. Hann sagði þar að heimamenn gætu eiginlega ekki lýst þessari óvæntu tekjulind öðruvísi en sem gjöf frá Guði.

En hvað er Angvilla í raun að selja? Ekki gervigreindina og ekki heldur vefsíðurnar sjálfar. Það sem er til sölu er rétturinn til að nota punkt ai aftast í veffangi. Sá sem skráir lén fær það ekki til eignar um alla framtíð. Hann greiðir fyrir notkunina í ákveðinn tíma og þarf síðan að endurnýja skráninguna.

José Vanterpool lýsir þessu sem himnasendingu en var mögulega hægt að sjá þetta fyrir?

Það er þó mikilvægt að greina þessar tekjur frá hefðbundinni atvinnustarfsemi. Engin krafa er um að fyrirtæki sem notar punkt ai sé með skrifstofu eða starfsfólk á Angvilla. Ávinningurinn birtist fyrst og fremst í opinberum fjármálum hennar.

Stjórnvöld á Angvilla hafa sagt að þau ætli að fara varlega með tekjuaukann, greiða niður skuldir og nýta hluta teknanna til uppbyggingar flugvallarins og heilbrigðisþjónustu fyrir eldri borgara. Með því geta tekjur af stafrænu auðlindinni styrkt innviði ferðaþjónustunnar, atvinnugrein sem hagkerfið hefur lengi reitt sig á.

En þegar nýr tekjustofn birtist svo skyndilega vakna líka erfiðar spurningar. Hversu miklu á að verja strax, hversu mikið á að nota til að greiða niður skuldir og hversu stóran hluta þarf að leggja til hliðar? Enginn veit með vissu hvort eftirspurnin eftir punktur ai verður jafn mikil eftir tíu ár og hún er nú.

Landslénið er því eins konar ósýnileg auðlind. Angvilla ræður yfir endingunni en ekki eftirspurninni, sem veltur algjörlega á því hvort fyrirtæki úti í heimi vilji áfram tengja nöfn sín við gervigreind. Endurnýjunargjöldin veita ákveðið öryggi, en ekkert tryggir að áhuginn haldist óbreyttur.

Hættan er því ekki endilega sú að tekjurnar hverfi á einni nóttu. Hún felst frekar í því að stjórnvöld fari að líta á tímabundinn tekjuauka sem varanlega undirstöðu. Ef peningarnir eru notaðir til að standa undir föstum útgjöldum getur samdráttur síðar skilið eftir stórt gat í ríkissjóðnum.

Ekki einsdæmi

Angvilla er ekki fyrsta litla eyjan sem fær óvæntan happafeng úr heimi internetsins. Hinum megin á hnettinum hafði annað eyríki þegar uppgötvað hvers virði tveir bókstafir gátu orðið. Þar voru bókstafirnir ekki ai heldur tv.

Þetta er landslén Túvalú, eyjaklasa í Kyrrahafi þar sem rúmlega ellefu þúsund manns búa. Árið 1995 barst stjórnvöldum þar símbréf með þeim tíðindum að landinu hefði verið úthlutað landsléninu punktur tv. Internetið var þá svo nýtt að embættismennirnir vissu vart hvað þeir áttu að gera við þessa tvo bókstafi og klóruðu sér í kollinum yfir þessu símbréfi.

En tv hafði augljósa merkingu langt út fyrir eyjarnar. Það var alþjóðleg skammstöfun fyrir sjónvarp. Sjónvarpsstöðvar, myndbandaveitur og síðar streymisfyrirtæki vildu ólm fá veffang sem endaði á punktur tv.

Árið 2024 skilaði landslénið Túvalú meira en tíu milljónum bandaríkjadala. Það samsvaraði um áttunda hluta af opinberum tekjum landsins og var næststærsta tekjulind ríkisins á eftir sölu veiðiheimilda.

En mikill fjöldi skráðra léna er ekki alltaf það sama og mikil verðmæti.

Og við þurfum ekki að fara langt frá Túvalú til að finna dæmi um það. Rétt austan við Túvalú er annar lítill eyjaklasi, Tókelá, sem tilheyrir Nýja-Sjálandi. Þar var rekstur landslénsins, punktur tk, falinn hollensku fyrirtæki sem bauð fólki víða um heim að skrá lén án endurgjalds. Þegar mest lét voru skráð um það bil 25 milljónir léna með endingunni punktur tk, fleiri en undir landsléni nokkurs annars lands.

Ókeypis lénin komu þó með falinn kostnað. Lénin urðu vinsæl meðal þeirra sem dreifðu ruslpósti, stunduðu vefveiðar eða settu upp svikasíður. Landslénið punktur tk varð því víða tengt netglæpum. Fjöldinn var gríðarlegur, en eðli málsins samkvæmt voru þessar vefsíður flestar vafasamar og ekki traustsins verðar.

Angvilla fékk því stóra vinninginn í landslénalottóinu. Tilviljunin fólst ekki í því að eyjan fékk stafi úr eigin nafni, heldur í merkingunni sem umheimurinn gaf þeim síðar. Ærið verkefni bíður nú Angvillabúa: að nýta tekjurnar af gervigreindarbylgjunni til að byggja upp verðmæti og innviði sem standa eftir, jafnvel þótt tekjurnar af punktur ai taki síðar að minnka.

#bókstafir #milljörðum #sem #tveir #urðu


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-10-18-tveir-bokstafir-sem-urdu-ad-milljordum-489824

📰 Aðrar fréttir

Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 0
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 0
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 1
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 1
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 2
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 0
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 2
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 3
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 5
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 5
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 1
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 4
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Several dead or injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Several dead or injured in major fire at Canada military base
Officials have not given a cause or death toll, citing the "very active and delicate" situation at Canadian Forces Base Wainwright.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 5
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 5
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 5
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 3
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndi...
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 5
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...