Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum.
„Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Einkum má búast við mikilli úrkomu á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og með suðurströndinni í grennd við jökla. Á sumum svæðum getur uppsöfnuð úrkoma orðið mjög mikil á tímabilinu, þó einkum í grennd við jökla,“ segir í viðvöruninni á vef Veðurstofunnar.
Þar er bent á að í lægðinni á miðvikudag hafi einnig rignt töluvert og svo snjóað á láglendi á vestan- og norðanverðu landinu. Víða hafi snjó leyst á láglendi og upp í miðjar hlíðar, en enn sé snjór til fjalla, þó mismikill eftir landshlutum. Búast megi við að leysingar verði áberandi á vestan- og norðanverðu landinu fram á mánudag.
Skriður og grjóthrun
Á Vestfjörðum, Ströndum og Snæfellsnesi muni rigna ofan í snjóinn sem féll til fjalla. Við slíkar aðstæður geti jarðvegur orðið mettaður sem getur valdið skriðum eða grjóthruni. Því megi búast við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum. Skriðuföll geti náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum með litlum sem engum fyrirvara og valdið röskun á umferð. Að svo stöddu er ekki talin vera hætta í byggð.
„Ákveðið hefur verið að gefa út skriðuviðvörun vegna leysinga og úrkomu fyrir norðanverða Vestfirði og sunnanverða Vestfirði. Ekki er hægt að útiloka grjóthrun eða minni skriður í bröttum hlíðum utan svæðanna sem búið er að gefa út viðvörun fyrir ef staðbundin úrkoma gæti orðið mikil og leysingar kröftugar,“ segir að lokum.
Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.