Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir

Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir

Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir

Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ár.

Fjórum árum síðar hefur hann enn ekki afplánað dóminn og virðist una hag sínum vel í Svíþjóð. Sigríður og móðir hennar hafa ítrekað óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins en hafa að sögn Sigríðar hvergi fengið fullnægjandi svör.

„En þar lauk baráttunni ekki“

Sigríður ólst upp í Vestmannaeyjum þar sem móðurbróðir hennar var búsettur um árabil. Hann var náinn fjölskyldumeðlimur og mikill samgangur var milli heimilanna.

Fram kemur í dómi Landsréttar að maðurinn braut ítrekað gegn Sigríði á árunum 2005 til 2014, frá því að hún var þriggja ára þar til hún var fjórtán ára.

Brotin áttu sér meðal annars stað á heimili hennar, heimili mannsins og hjá ömmu hennar og afa.

„Það tók mig ómældan styrk og hugrekki að stíga fram, segja frá og berjast fyrir réttlæti. Í fimm ár þurfti ég að ganga í gegnum dómskerfið. Fimm ár af bið, óvissu, sársauka og því að þurfa að rifja upp aftur og aftur það sem ég hefði aldrei átt að þurfa að upplifa,“ segir Sigríður í opinni færslu sem hún birti á Facebook á dögunum.

Árið 2017 greindi Sigríður fjölskyldu sinni frá kynferðisofbeldinu. Hún hafði áður reynt að segja vinkonum sínum frá ofbeldinu, meðal annars árið 2015, en þá ekki treyst sér til að greina frá öllum málavöxtum.

Nokkurra ára rannsókn

Faðir hennar tilkynnti lögreglu um brotin þann 15. júní sama ár og í kjölfarið hófst rannsókn sem átti eftir að standa yfir í nokkur ár. Sigríður kveðst þakklát fyrir þann stuðning sem hún hefur fengið frá fjölskyldu sinni eftir að hún sagði frá. Flestir í fjölskyldunni hafi staðið með henni og margir slitið samskiptum við móðurbróður hennar eftir að málið kom upp. Það hafi þó verið mikið áfall fyrir fjölskylduna þegar málið kom upp, sérstaklega móður hennar sem hafði verið náin bróður sínum.

„Þetta var auðvitað þvílíkt áfall fyrir mömmu líka. Hún náttúrulega hringdi í hann þegar ég sagði henni frá þessu. Hann sagði við hana: „Hún er bara að ljúga, hún er bara að ljúga, Inna.“ En mamma hefði aldrei tekið hans orð fram yfir mín. Hún er minn helsti stuðningur, hún er kletturinn minn í þessu öllu.“

Sigríður sagði fjölskyldu sinni frá ofbeldinu árið 2017 og hófst þá löng og erfið vegferð í gegnum réttarkerfið. Það tók tæp fimm ár frá kæru þar til endanleg niðurstaða fékkst í málinu.Vísir/Bjarni Þór

Rannsókninni lauk með útgáfu ákæru í september árið 2020 og málið fór fyrir Héraðsdóm Suðurlands.

Fjölmörg vitni komu fyrir dóminn og lýstu meðal annars breytingum á hegðun Sigríðar og líðan á unglingsárunum. Þá lágu fyrir vottorð sálfræðinga sem höfðu sinnt henni vegna afleiðinga ofbeldisins.

Maðurinn neitaði sök en dómurinn taldi sannað að hann hefði gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök. Þann 29. apríl 2021 féll síðan dómur yfir manninum en þá voru liðin tæp fjögur ár frá því að málið var tilkynnt lögreglu.

„Hann var dæmdur í sex ára fangelsi. En þar lauk baráttunni ekki. Hann áfrýjaði dómnum og þá fór enn eitt árið í endalausa bið og óvissu,“ segir Sigríður. 

Fór úr landi skömmu eftir að hún sagði frá

Þegar Sigríður greindi frá kynferðisofbeldinu árið 2017 var móðurbróðir hennar enn búsettur í Vestmannaeyjum. Hann fór að hennar sögn úr landi um tveimur vikum síðar og settist að lokum að í Svíþjóð.

„Hann sagði vinnuveitanda sínum að hann ætlaði í vikufrí en fór fyrst til Filippseyja, þaðan sem eiginkona hans er.“

Sigríður telur að brottför mannsins af landinu hafi tengst því að ásakanirnar voru komnar fram. Hann mætti ekki til landsins þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi og í Landsrétti, heldur gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað með hljóði og mynd.

Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá, sem raktar eru í dómnum, hafði hann verið með skráð lögheimili í Svíþjóð frá 27. september 2018. Hann hafði því flutt lögheimili sitt þangað áður en ákæra var gefin út og málið fór fyrir dómstóla.

Sigríður telur að aðstæður vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafi auðveldað manninum að taka þátt í réttarhöldunum án þess að þurfa að ferðast til Íslands. Hún er jafnframt sannfærð um að hann hefði ekki viljað snúa aftur til Vestmannaeyja eftir að málið komst upp.

Refsingin milduð

Þann 8. apríl árið 2022 staðfesti Landsréttur sakfellinguna yfir manninum en mildaði refsinguna úr sex árum í fimm. Sú niðurstaða olli Sigríði vonbrigðum.

Í dómi Landsréttar kemur fram að framburður Sigríðar hafi verið metinn mjög trúverðugur og fengið stoð í ýmsum óbeinum sönnunargögnum, einkum framburði vitna og gögnum frá sálfræðingum. Að sama skapi voru atriði í framburði mannsins sem drógu úr trúverðugleika hans. Taldi rétturinn hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir.

Við ákvörðun refsingarinnar leit Landsréttur meðal annars til þess að óvissa væri um nákvæman fjölda brotanna, að sakfellingin tæki til skemmra tímabils en ákæran og að maðurinn hefði ekki áður hlotið refsingu. Þá var tekið tillit til óútskýrðra tafa á rannsókn málsins sem honum yrði ekki kennt um. Landsréttur lagði jafnframt áherslu á alvarleika brotanna; þau hefðu verið gróf, ítrekuð og framin á löngu tímabili, auk þess sem maðurinn hefði haft algjöra yfirburðastöðu gagnvart Sigríði. Brotin hefðu átt sér stað á heimili þar sem hún átti að geta fundið öryggi og skjól og valdið henni miklu tjóni.

„Það var talað um að þetta eina ár, sem leið þarna á milli, hefði tekið svo mikið á hann og verið honum svo erfitt,“ segir Sigríður en hún upplifði lækkun refsingarinnar sem mikið óréttlæti og hefur sérstaklega setið í henni að tekið hafi verið tillit til rannsóknartafa við refsiákvörðunina.

Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða henni 2,5 milljónir króna í miskabætur ásamt vöxtum.

Sigríður gagnrýnir harðlega að brotaþolar þurfi sjálfir að hafa frumkvæði að því að afla upplýsinga um afplánun dæmdra brotamanna. Hún telur óásættanlegt að yfirvöld veiti ekki skýrar upplýsingar um stöðu málsins.Vísir/Bjarni Þór

„Svo bíðum við bara“

Eftir að Landsréttur kvað upp dóminn tók við nýtt tímabil hjá Sigríði. Réttarhöldunum var lokið og nú beið hún þess að fá upplýsingar um hvenær maðurinn myndi hefja afplánun. Þegar hún leitaði til lögmanns síns hafi henni í meginatriðum verið sagt að bíða; ekki lægi fyrir hvenær maðurinn yrði boðaður til afplánunar eða hvernig staðið yrði að fullnustu dómsins þar sem hann væri búsettur erlendis.

„Svo bíðum við bara og bíðum og bíðum áfram.“

Hún og móðir hennar hafi haldið áfram að leita upplýsinga eftir því sem tíminn leið. Þær hafi meðal annars sent fyrirspurnir til Fangelsismálastofnunar og leitað aðstoðar lögmanns Sigríðar, sem hafi einnig reynt að komast að því hvað væri að gerast með afplánunina. Að sögn Sigríðar hafi lögmaðurinn ekki fengið nein afgerandi svör og ætlað að hafa samband ef eitthvað nýtt kæmi fram.

Sigríður kveðst ekki skilja hvers vegna búseta mannsins í Svíþjóð virðist gera fullnustu dómsins svo flókna. Löndin eigi samstarf um afhendingu dæmdra manna og því eigi að hennar mati að vera hægt að finna lausn á málinu.

Þannig að ég skil ekki alveg hvað málið er.

Hún og móðir hennar hafi síðast sent fyrirspurnir til Fangelsismálastofnunar í júní síðastliðnum. Þær hafi báðar sent erindi á svipuðum tíma en engin svör fengið. Í upphafi hafi þær stundum fengið þau svör frá lögreglu og lögmanni að engar upplýsingar lægju fyrir um afplánunina. Samskiptin við aðra aðila hafi hins vegar verið mun erfiðari.

„Þar er bara eina svarið: „Við vitum þetta ekki.“ Þegar við förum til lögreglunnar eða til lögfræðingsins fáum við einhver svör. En þegar við förum eitthvað lengra þá erum við bara hunsaðar. Það var bara þarna í byrjun sem við fengum þessi „við vitum það ekki“ svör. En síðastliðin ár höfum við ekki einu sinni fengið viðbrögð.“

Þessi samskipti urðu að lokum til þess að Sigríður ákvað að vekja opinbera athygli á málinu.

Hún segir að hún hafi lengi velt þeim möguleika fyrir sér en vonað að hægt yrði að fá skýringar eftir öðrum leiðum.

„Og eins og þetta sé ekki nógu mikið óréttlæti þá höfum bæði ég og mamma mín reynt að fá svör, reynt að fá einhverjar skýringar á því hvernig dæmdur kynferðisbrotamaður getur gengið laus árum saman án þess að afplána fangelsisdóm sinn. Og hvað höfum við fengið til baka? Ekkert. Ekki einu sinni svar. Hvernig getur það verið ásættanlegt?“

Barðist við ópíóíðafíkn í þrjú ár

Kynferðisofbeldið hefur haft langvarandi áhrif á líf Sigríðar. Þegar hún var á unglingsaldri fór andlegri líðan hennar að hraka og átti hún meðal annars við kvíða, depurð og svefnerfiðleika að stríða. Skólagangan varð einnig erfiðari og samkvæmt gögnum sem lögð voru fram við dómsmeðferðina versnaði bæði námsárangur hennar og skólasókn verulega. 

Í sálfræðivottorðum sem lögð voru fram í málinu kom fram að Sigríður hefði greinst með áfallastreituröskun sem rakin var til kynferðisofbeldisins. Hún hafði glímt við endurteknar minningar um brotin, martraðir og mikla vanlíðan. Þá hafði hún þurft að leita sér læknisaðstoðar vegna kvíða og depurðar og verið á þunglyndislyfjum um árabil.

Áhrifin hafa fylgt henni fram á fullorðinsárin.

„Ég er enn þá að vinna úr þessu,“ segir Sigríður þegar talið berst að afleiðingum ofbeldisins.

Hún glímdi að eigin sögn við ópíóíðafíkn í tæp þrjú ár en er nú á batavegi. Í dag er hún gift og þau hjónin eiga von á sínu fyrsta barni, lítilli stelpu, í lok ársins. Hún er einnig komin aftur í nám og horfir til framtíðar með öðrum hætti en áður. Meðgangan hefur orðið henni hvatning til að halda áfram að vinna úr því sem hún hefur gengið í gegnum.

„Ég er komin með meiri vilja til að halda áfram og vinna í mínu máli.“

Með áhyggjur af öðrum börnum

Óvissan um afplánunina hefur jafnframt haft áhrif á Sigríði. Hún hefur áhyggjur af því að maðurinn sé enn frjáls ferða sinna þrátt fyrir sakfellinguna og að fólk í Svíþjóð viti ekki endilega af brotaferli hans á Íslandi.

Að hennar sögn á maðurinn fimm börn og hefur eignast tvö þeirra eftir að hann flutti frá Íslandi. Hún óttast að önnur börn geti komið inn á heimili hans án þess að foreldrar þeirra viti af fangelsisdómnum. 

„Það er eiginlega bara hræðilegt. Ekki nóg með það að ég hafi þurft að standa í skýrslutökum, endalausum skýrslutökum í sex ár, þá fæ ég aldrei þessa „lokun“ á málið af því að hann er ennþá laus. Og ég er alltaf að hugsa hvað hann er að gera með öðrum börnum. Það á náttúrulega ekkert barn að þurfa að lenda í þessu.“

Sigríður leggur áherslu á að barátta hennar snúist ekki eingöngu um hennar eigin reynslu heldur einnig um réttindi annarra brotaþola. Hún vill að dómar vegna kynferðisbrota hafi raunverulegar afleiðingar og að þolendur þurfi ekki að berjast árum saman fyrir því að þeim sé framfylgt.Vísir/Bjarni Þór

Ætlar ekki sætta sig við þögnina

Sigríður hafði lengi velt því fyrir sér hvort hún ætti að fjalla opinberlega um málið. Í Vestmannaeyjum þekkist fólk og hún vissi að Facebook-færsla um svo persónulega reynslu myndi vekja athygli. Hún hafði ekki viljað láta kynferðisofbeldið skilgreina sig gagnvart öðrum en eftir áralanga bið taldi hún mikilvægt að láta í sér heyra.

Hún telur ekki eðlilegt að brotaþolar þurfi sjálfir að ganga á eftir upplýsingum um fullnustu dóma árum saman eftir að niðurstaða dómstólanna liggur fyrir. Eftir margra ára rannsókn, réttarhöld og baráttu við afleiðingar kynferðisofbeldisins vill hún geta treyst því að fangelsisdómurinn hafi raunverulegar afleiðingar.

Í lok Facebook-færslunnar eru skilaboð hennar skýr.

„Ég er ekki að biðja um neina sérstaka meðferð. Ég er að biðja um að fangelsisdómi sé framfylgt. Að einhver axli ábyrgð. Að einhver svari okkur. Þögnin er ekki svar. Og hún er svo sannarlega ekki réttlæti.“

Vísir hefur sent fyrirspurn til Fangelsismálastofnunar, ríkissaksóknara og lögreglu vegna málsins og óskað eftir upplýsingum um fullnustu dómsins. Svör höfðu ekki borist þegar þetta var skrifað en greint verður frá stöðu málsins þegar svör berast.

Ekki liggur því fyrir hvort íslensk yfirvöld hafi óskað eftir afhendingu mannsins frá Svíþjóð, hvort sænsk yfirvöld hafi fjallað um slíka beiðni eða hvort önnur úrræði til fullnustu refsingarinnar hafi verið skoðuð.

#braut #frændinn #gengur #henni #sem


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949510d/fraendinn-sem-braut-a-henni-gengur-enn-laus

📰 Aðrar fréttir

Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 1
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 2
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 2
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 2
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 2
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 2
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 4
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 4
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 4
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 5
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 5
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 2
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 4
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Several dead or injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 3
Several dead or injured in major fire at Canada military base
Officials have not given a cause or death toll, citing the "very active and delicate" situation at Canadian Forces Base Wainwright.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 5
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 5
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 5
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 4
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndi...
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 5
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...