Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin í fyrsta skipti: þyrnótta kúlu með stórri „hnetu“ innan í. Mun þetta í fyrsta skipti sem Hrossakastanía myndar aldin á Íslandi svo vitað sé.
„Ég hef séð blóm en ég hef aldrei séð aldin áður,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar í nýjasta þætti Gulls og grænna skóga.
„Þetta er suðlægt tré ættað frá Balkanskaga, en er engu að síður mikið ræktað um alla Evrópu og eitthvað í Norður-Ameríku,” segir Steinar.
„Það er áberandi í almenningsgörðum en þykir yfirleitt of stórvaxið í heimilisgarða erlendis.“
Steinar segir fleiri tegundir af hrossakastaníuættkvíslinni tóra eða skrimta hér á landi.
„En þær allar virðast vera hitakærar og þurfa sérlega góðar aðstæður til að vaxa og þroskast.”
Óvíst um þroska hnetunnar
Steinar gekk með Bryndísi Björgvinsdóttur um Hellisgerði í nýjasta þætti Gulls og grænna skóga, þar sem meðal annars bar hrossakastaníu fyrir augu sem Sorgarmiðstöðin skreytir jafnan með fjólubláum ljósaseríum í desember.
Þegar göngutúrinn var farinn hafði Steinar frétt af því að mögulega væri aldin að myndast, en það var Konráð Bragason garðyrkjufræðingur sem festi þyrnótta hnettina við Laufásborg á filmu.
„Ég er búinn að fylgjast með þessu tré í mörg ár,” segir Konráð, sem gerir reyndar ráð fyrir að hann sé alls ekki einn um það. Tréð hafi blómstrað á vorin um nokkurra ára skeið og það hafi verið spennandi að fylgjast með hvort úr yrði aldin.
Hann hefur nokkrum sinnum áður fundið hálfþroskuð aldin á hrossakastaníum en aldrei séð þau ná alla leið.
„Ég veit ekki hvort það er fullþroskuð hneta þarna inní en vona það.”
Konráð segir sumarið hafa verið gróðrinum gott. Það sjáist á góðri ávaxtauppskeru, eplum plómum og kirsuberjum, og sjálfur hefur Konráð aldrei ræktað jafn vel af hindberjum.
Hann segir uppskeruna augljóst merki um breytingar á veðurfari en tekur undir að líta megi á björtu hliðarnar.
„Fyrir íslenska garðyrkju er gott að fá svona góð sumur.”