Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast hjá reglum um bann við því að auglýsa lyfseðilsskyld lyf. Hún segir Lyfjastofnun með málið til skoðunar og telur mikilvægt að lögum sé fylgt.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, ætlar að taka ummæli Jóns Gnarr um forystuleysi innan flokksins til umhugsunar. Það sé þó ósatt að það andi köldu milli hennar og dómsmálaráðherra. Það sé högg fyrir þingflokkinn að missa Jón.
Hægt er að hlusta á Bylgjuna hér.
Það er umhverfisvænna að vera ókurteis við gervigreindina þar sem hver fyrirspurn kostar orku. Gervigreindarsérfræðingur segir óþarfi að bjóða spjallmenni góðan daginn - betra sé að koma sér beint að efninu.
Landsliðið í Bakgarðshlaupum hélt af stað í sinn 25. hring klukkan tólf og hafa keppendur hlaupið í sólarhring.
Í íþróttafréttum fjöllum við um Bestu deild kvenna, Sveindísi Jane og Michael Carrick.