Innanríkisráðherra Frakklands segir að skemmdarverk í mótmælunum þar í gær séu til rannsóknar og að skemmdarvörgunum verði refsað. Ein af byggingunum sem skemmdist var rúmlega 140 ára gömul. Um 1.800 voru handteknir í gær, þar af tæplega helmingurinn í París.
Afleiðingar mótmælanna sem haldin voru víðs vegar um Frakkland í gær eru smátt og smátt að koma í ljós. Mótmælin fóru víða úr böndunum og lögreglan beitti táragasi á fjölda manns. Skemmdarverk voru framin á byggingum, bílum og fleiru. Embættismenn segja hitann í þessum mótmælum hafa verið með ólíkindum.
Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands segir að 1.800 manns hafi verið handteknir í gær. Rannsókn standi yfir á skemmdarverkunum svo hægt sé að rétta yfir gerendunum. Þá hafi um 500 lögreglumenn, slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn slasast. Ekkert hefur verið gefið upp um fjölda slasaðra meðal mótmælenda.
Lögreglan í París segir að 855 hafi verið handteknir þar, sem sé met. Rusl eftir bálkesti, glerbrot og bílhræ liggi eins og hráviði um göturnar. Lamia El Aaraje varaborgarstjóri Parísar segir svo mikið ofbeldi í mótmælum aldrei hafa sést í borginni.
Formaður Samtaka franskra verslunarfyrirtækja segir að um 1.500 verslanir hafi orðið fyrir skemmdum og greipar látnar sópa í mörgum þeirra. Tjónið hlaupi á hundruðum milljóna evra en nákvæm tala liggi ekki fyrir. Eigandi einnar verslunarinnar sagði við BBC að hann teldi ekki að neinn ræningjanna hefði verið mótmælandi, heldur menn sem væru að nýta sér mótmælin í ágóðaskyni.
Ein af byggingunum sem mótmælendur skemmdu var ráðhúsið í Limoge, sem var byggt árið 1883. Maurice Barate héraðsstjóri þar segir að æstur múgur hafi kveikt í húsinu af ásettu ráði. Slökkviliðið náði ekki stjórn á eldinum fyrr en í morgun. Hluti byggingarinnar hrundi og hún er að mestu ónýt.
Stjórnmálamenn hafa tekið mismunandi afstöðu gagnvart mótmælum. Jean-Luc Melenchon, forsetaframbjóðandi vinstri flokksins, lýsti yfir stuðningi við mótmælendur þó að hann taki fram að það að ræna og rupla sé ekki í samræmi við þeirra aðgerðir. Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar, segir öfga vinstri hópa bera ábyrgð en varaborgarstjóri Parísar, sem er sósíalisti, segir Þjóðfylkinguna hafa alið á spennu meðal mótmælenda til að nýta sér það í kosningabaráttu Le Pen.