Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að með þessu gæti borgin sparað að minnsta kosti 125 milljónir króna á ári eða um hálfan milljarð á kjörtímabili og að umboð borgarfulltrúa frá kjósendum myndi styrkjast.
„Allir eru þessir borgarfulltrúar á fullum launum hjá skattgreiðendum, auk sjö varaborgarfulltrúa. Fyrirkomulagið er óhefðbundið, bæði í samanburði við önnur sveitarfélög hérlendis og sambærilegar borgir erlendis – þar sem sveitarstjórnarmenn eða borgarfulltrúar sinna verkefninu einungis í hlutastarfi samhliða öðrum störfum,“ segir Hildur í greininni.
Viðbótarfulltrúar ekki skilað betri þjónustu
Henni þyki eðlilegt að borgarfulltrúar líti sér nær þegar leitað er leiða til að draga úr kostnaði borgarinnar. Fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23 árið 2018 hafi leitt til dreifðari ábyrgðar, fleiri framboða og flóknari meirihlutamyndunar.
„Átta viðbótarborgarfulltrúar hafa þannig ekki skilað betri þjónustu, hraðari ákvörðunum eða skýrari ábyrgð.“
Meirihluti borgarstjórnar hafi lagt fram áskorun til Alþingis í byrjun mánaðar um að gera sveitarfélögum kleift að ráða fjölda kjörinna fulltrúa í eigin sveitarstjórn.
„Nú þegar treystir löggjafinn sveitarfélögum til að stýra veigamiklum málaflokkum og skýtur því skökku við að treysta þeim ekki til þess að meta hæfilegan fjölda sveitarstjórnarmanna. Að mínum dómi færi vel á því að fækka fulltrúunum aftur í 15.“