Ég, hóran
Fimmtíu og sjö karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar vinir þeirra nauðguðu henni í hópi. Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir brandara um „hórur“ í ræktinni endurspegla sama tilkall til kvenna.
Grínisti að nafni Shane Gillis kom fram í Saturday Night Live, einum frægasta afþreyingarþætti Bandaríkjanna, fyrir stuttu og sagði lélegan brandara. Inntakið var að stuttbuxnaval kvenna á líkamsræktarstöðvum í dag gæfi til kynna að þær væru hórur (e. whores) og niðurlagið í brandaranum var ekki burðugara en þetta. Salurinn hló vandræðalega en netheimar ekki. Femínistar fóru á flug og margir karlmenn stigu fram og fordæmdu lélegan brandarann og sögðu hann gildishlaðinn og venjuvæða andfélagslega hegðun í garð kvenna. Það sem virtist koma einna verst við fólk var að brandaravalið kemur stuttu eftir að 57 karlmenn eru grunaðir um að hafa ekki komið ungri konu til aðstoðar þegar hún varð fyrir hópnauðgun af hálfu vina þeirra og félaga í Cornell-háskólanum í Bandaríkjunum. Það er sinnuleysið og tilkallið í garð þessarar konu sem er að gera okkur femínistana og þá sem eru sjálfræði og öryggi kvenna hliðhollir, gjörsamlega kolkuntuklikkaða þessa dagana. Tímasetning brandara Gillis er afleit og gjörsamlega á skjön við hvað flestum okkur finnst fyndið núna. Hlutir líkt og Epstein-skjölin, hispurslaus og sífelld kvenfyrirlitning ríkisstjórnar Trumps og brotaþolatíðni kynferðisafbrota á Íslandi hafa alla vega rænt mig kímnigáfunni sem stendur. Þegar menn gera aðför að sjálfræði kvenna í formi gríns eða glæpa á tímum sem þessum, ýta þeir undir afmennskun konunnar og gera tilkalli sínu og annarra hátt undir höfði. Valdið verður fýsilegt í augum þeirra mannkostaskertu og konan verður að hlut sem allir mega deila.
Ég byrjaði að skrifa en sá hversu fljótt ég varð bæði dökk og þung. Ég reyndi margt til að reyna að hætta að vera svona geðillur og leiðinlegur femínisti en allt kom fyrir ekkert. Ég gat ekki hætt að hugsa um hversu hórulega ég hlyti að líta út í nýju stuttbuxunum mínum sem ég keypti mér nýverið til að nota í ræktina þá örfáu daga sem ég mæti þegar breytingaskeiðið er ekki að reyna að kála mér. Spreðilslega klædd nýju hórufötunum mínum eftir einn slíkan dag fór ég að hugsa um orðið „hóra“ í menningarlegu samhengi, uppruna þess og tilgang.
Uppruni orðsins
Orðið „hóra“ er hundgamalt. Það er til í forníslensku og kemur fyrir í Íslendingasögum, Grágás og Sturlungu og er þar iðulega beint að konum. Orðið er því hátt upp í 900 ára gamalt í íslensku. Orðið er í raun mun eldra en íslenska sjálf og kemur víða við í fornnorrænu sem er um 1.300 ára gömul. Þar merkir orðið „hóra“: hórdóm, ótrúleika eða kynferðisbrot gegn kristnum siðareglum. Líkindarannsóknir í málfræði benda til að orðið „hóra“ eigi indóevrópska rót, þ.e. orðið „kaurós“ sem teygir anga sína 2.000 til 3.000 ár aftur í tímann. Þar er orðið túlkað sem girnd, ósiðsemi og ástríða. Af þessu að dæma er orðið fornt og rótgróið kynbundið skammaryrði í norrænni menningu og kristilegu siðgæði sem lengi hefur gert margan manninn að hræsnara og konuna að félagslegum fanga.
Menningarlegt samhengi og tilgangur
Í nútímamáli er „hóra“ fyrst og fremst niðrandi skammaryrði og notað óspart til þess að níða konur í alls konar samhengi. Hóran er ekki lengur lúpandi á götuhorni, hún er í stuttbuxunum í ræktinni eða ölvuð í partíhúsi bræðralags vestanhafs. Samheiti og skyldheiti við hóru eru meðal annars: drusla, mella, skækja, hórkona, skækjukind, skella, hórdómskona, hórmær, lauslát kona, ósiðleg kona, óvönduð kona og óhrein kona. Ekki hafa öll þessi orð elst vel en „hóra“ hefur staðið af sér tímans tönn og virðist vera að sækja í sig veðrið. Öll þessi orð eiga þó það sameiginlegt að eiga sinn þátt í að viðhalda kvenfyrirlitningu, takmarka kynfrelsi og réttlæta ofbeldi og félagslega útskúfun kvenna.
Í menningarlegu samhengi samtímans er orðið „hóra“ notað sem valdaverkfæri en ekki hlutlaus lýsing. Á þann hátt er orðið notað sem neikvæð stimplun á konur sem ögra valdi og sem táknmynd fyrir einhvers konar andkristilegan „óhreinleika“ til að réttlæta útilokun. Orðið er gildishlaðið á þann hátt að það rýrir konur úr öllum áttum. Út frá kristilegum gildum er kynfrelsi kvenna mökuð synd og hórdómur var álitinn brot gegn gildum samfélagsins. Sögulega séð var því „hóra“ lagaleg staða, trúarleg stimplun, félagsleg útilokun og kynbundin refsing. Allur þessi þungi í einu fjögurra stafa orði.
„Þegar menn gera aðför að sjálfræði kvenna í formi gríns eða glæpa á tímum sem þessum, ýta þeir undir afmennskun konunnar og gera tilkalli sínu og annarra hátt undir höfði“
Kynjuð skammaryrði líkt og „hóra“ geta átt þátt í að móta innræti kvenna frá unga aldri á þann hátt að þau kenna þeim að vera varar um sig fremur en að sá sem vána færir beri ábyrgð. Skömmin verður hluti af sjálfi kvenna og heldur þeim í hlýðni og gerir kynfrelsi að áhættu. Munúðarfullt tal er ekki meyjum sæmandi og vangaveltur um hversu drukkin eða kynfrjáls hún sé eða hvernig hún sé klædd fara á kreik. „Lostafull kona er ekki heiðvirð kona“ heyrist enn frá úreltu gildismati. Orðið gerir þannig líkama kvenna að félagslegri eign sem síðan sjö strákar í bræðralagi geta gert tilkall til án þess að upplifa afleiðingar eða skömm.
Hórerí Hórera
Feminísk endurheimt orða (e. reclamation) er mikið áhugamál hjá mér. Skammaryrði eiga það til að missa vald sitt þegar maður eignar sér þau, sbr. orðin „drusla“ og „feit“. Þegar „grínistinn“ Gillis talaði um hórur í líkamsræktarstöðvum út frá mælistikunni „stuttbuxur“ gerðist svolítið sem kom eins og ferskur andblær inn í umræðuna. Karlmenn urðu reiðir og skunduðu á samfélagsmiðlana konum til varnar í meira magni en ég hef séð síðastliðin tuttugu ár. Þetta snýst nefnilega ekki um hverjir eru fávitar og hverjir eru góðir gaurar. Þessi nýja bylting er heróp gegn sinnuleysi, afskiptaleysi og samkenndarskorti góðu gauranna og samfélagsins í heild sinni þegar kemur að öryggi og sjálfræði kvenna. Það er ekki lengur ókei að segja ekkert og ylja sér við það. Þetta er ekki góður tími fyrir skaðlega skilyrta vonda menn líkt og Andrew Tate og fylgjendur hans. Þetta er tími endurreisnar karlmennskunnar og mikið er ég glöð og fegin. Verið velkomnir, kæru karlar, því í virkri samkennd dætrum ykkar til hagsbóta er gott að vera.