Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatnsleka úr vatnsúðarakerfi í verslunarhúsnæði í Mjóddinni.
Útköll á sjúkrabíla voru 89, 46 á dagvaktinni og 43 á næturvaktinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins greinir frá þessu í tilkynningu.
„Það kom þarna á tímabili á milli hálf fjögur til að verða hálf sjö þar sem komu nokkur mál vegna roktjóns,“ segir Guðjón Ingason varðstjóri og á við síðdegis í gær.
„Þetta var aðallega svona þakjárn að losna. Svo var einn gervihnattadiskur sem var laus. Við þurftum að losa hann og taka niður og losa þessi járn sem voru laus.“
Þið eruð stundum að berjast við vindana. Eruð þið með sérstakt verklag í kringum það?
„Við erum með sérstakar óveðurskistur með okkur sem við tökum með okkur í svona hluti. Það eru tæki og tól í þeim sem hjálpar okkur við það að eiga við svona lagað. Svo náttúrlega er þetta oft mikil þakvinna og í vondu veðri er þetta ekkert rosalega sniðugt, að vera að fara upp á þök en við erum alltaf með vaðið fyrir neðan okkur og setjum öryggið á oddinn,“ svarar Guðjón.
„Í svona vinnu erum við að tryggja okkur, þannig að við séum ekki að falla niður af þökum. Svo ef okkur líst ekkert á það erum við ekkert að sinna þessu þar til það lægir. Það er svona mannleg skynsemi í þessu.“
Vatnslekinn í Mjóddinni kom síðan upp klukkan fjögur.
„Það sem veldur þessum vatnsleka er brotinn sprinkler-haus [vatnsúðarahaus]. Það er töluvert vatn sem lekur út af því og það er búið að gera í einhvern tíma, líklega, af því þetta er alveg talsvert þarna,“ segir Guðjón Ingi.
„Við erum með sérstakt tól til að loka fyrir svona sprinklera. Það er svo sem ekki stóra málið, það er hvað þetta var búið að vera lengi áður en við komum.