Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns.
„Við þurftum að festa niður þakjárn og taka niður einn gamlan gervihnattardisk sem farinn var að losna og skapa hættu,“ skrifar slökkviliðið.
Ásamt færslunni birtust myndir úr einu útkalli síðasta sólarhrings en þar má sjá að töluverður vatnsleki hafi orðið þegar flæddi úr vatnsúðarakerfi í verslunarhúsnæði í Mjóddinni.